Bragi skiptir í Hauka eins og faðir sinn, móðir og bróðir forðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. nóvember 2021 15:01 Bragi Guðmundsson í leik með Grindavík í úrvalsdeildinni. Vísir/Bára Dröfn Grindvíkingurinn Bragi Guðmundsson verður ekki meira með Grindvíkingum í Subway-deild karla í körfubolta því hann hefur skipt í 1. deildarlið Hauka.
Bragi fer því úr toppliði úrvalsdeildarinnar til næstefsta liðsins í 1. deildinni. Grindvíkingar hafa unnið fimm af sex leikjum sínum en Haukarnir eru með sex sigra í sjö leikjum. Grindvíkingar segja frá þessum félagsskiptum á sinni síðu og að hinn átján ára gamli Bragi hafi óskað eftir því að fá að skipta yfir í Hauka með það fyrir augum að fá meiri spilatíma á yfirstandandi keppnistímabili. Bragi hefur leikið tæpar átta mínútur að meðaltali í leik í Subway-deildinni í vetur og var með 2,0 stig og 0,8 stoðsendingar að meðaltali í leik. Stjórn Körfuknattleiksdeildar Grindavíkur óskar Braga góðs gengis með Haukum í vetur í frétt sinni en vonast um leið til að sjá hann aftur í gula búningnum með Grindavík í HS Orku Höllinni áður en langt um líður. Bragi er langt frá því að vera sá fyrsti í fjölskyldunni til að spila fyrir Hauka. Bæði faðir hans og móðir, Guðmundur Bragason og Stefanía Sigríður Jónsdóttir, spiluðu með Haukum á sínum tíma og það gerði einnig eldri bróðir hans Ingvi Þór Guðmundsson. Ingvi Þór var með 10,1 stig í leik með Haukum fyrri hluta 2020-21 tímabilsins. Guðmundur Bragason spilaði þrjú tímabil með Haukum frá 1999 til 2002. Hans besta tímabil var 1999-2000 þegar hann var með 16,9 stig og 10,4 fráköst að meðaltali í leik. Stefanía Sigríður spilaði með Haukum bæði í úrvalsdeild og 1. deild en 2002-03 tímabilið var hún með 7,5 stig og 4,6 stoðsendingar að meðaltali í leik. Bragi er fæddur í október 2003.
Subway-deild karla Haukar UMF Grindavík Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Leik lokið: Fram - Haukar 37-34 | Særðir gestirnir komust ekki heilir úr Úlfarsárdal Handbolti Unga hjólreiðakonan látin Sport Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Fleiri fréttir Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sjá meira