Innlent

Fjölskylda Wagstaff fær níu milljónir vegna flugslyssins

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Wagstaff systkinin með föðurömmu sinni.
Wagstaff systkinin með föðurömmu sinni.

Ekkju og þremur börnum kanadíska flugmannsins Arthur Grant Wagstaff sem fórst í flugslysi í Barkárdal í ágúst 2015 hafa verið dæmdar samanlagt um níu milljónir króna í bætur. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Fréttablaðið greinir frá en hluti dómanna hafa verið birtir á vef Héraðsdóms Reykjavíkur. 

Ekkjunni Roslyn Mary Wagstaff voru dæmdar rúmar þrjár milljónir króna í bætur en dætrum þeirra Sarah Louise og Claire Noelle Wagstaff tvær milljónir króna sem og syni þeirra Tyler Grant.

Fjölskyldan höfðaði mál á hendur Arngrími Jóhannssyni flugmanni og tryggingafyrirtækinu Sjóvá. Arngrímur er einn reynslumesti og þekktasti flugmaður landsins.

Þann 9. ágúst 2015 stóð til að Arngrímur og Arthur Grant Wagstaff legðu upp í langferð frá Íslandi með nokkrum stoppum. Ferðinni var á endanum heitið til Minneapolis í Bandaríkjunum þar sem þeir hugðust selja sjálfa vélina sem bar þá á áfangastað.

Vélin var lítil flutningavél af gerðinni De Havilland DHC-2 Beaver en þær hafa verið framleiddar í Kanada við góðan orðstýr frá 1947. Fjallað var ítarlega um málið í Fréttablaðinu á sínum tíma.

Þennan dag stóð bara til að fljúga vélinni til Keflavíkurflugvallar. Vélin brotlenti í Barkárdal og komst Rannsóknarnefnd samgönguslysa að þeirri niðurstöðu að vélin hefði verið ofhlaðin og slæm skilyrði til sjónflugs.

Arngrímur, sem flaug vélinni, komst við illan leik út úr brennandi flaki vélarinnar. Wagstaff lést. 

Fór svo að tryggingafélagið Sjóvá greiddi engar bætur til ekkjunnar vegna slyssins og því höfðaði fjölskyldan mál.

Ekkjan Roslyn fór fram á bætur vegna missis framfærenda en þeirri kröfu var hafnað að því er fram kemur á vef Fréttablaðsins. Arngrímur og Sjóvá voru hins vegar dæmd til að greiða allan málskostnað upp á margar milljónir króna. Kanadíska fjölskyldan fékk gjafsókn hjá íslenska ríkinu.


Tengdar fréttir

Krefst 7,5 milljóna í tryggingu frá ekkju

Arngrímur Jóhannsson vill að ekkja sem höfðar bótamál gegn honum vegna andláts eiginmanns skili 7,5 milljóna króna tryggingu fyrir málskostnaði. Lögmaður ekkjunnar segir það myndu hindra aðgang hennar að dómstólum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×