Fótbolti

Vanda fær sömu laun og Guðni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vanda Sigurgeirsdóttir tók við formennsku í KSÍ í októberbyrjun.
Vanda Sigurgeirsdóttir tók við formennsku í KSÍ í októberbyrjun. vísir/Hulda Margrét

Vanda Sigurgeirsdóttir er með sömu laun og forveri hennar í starfi formanns KSÍ, Guðni Bergsson.

Hann var með tæplega 1,3 milljón á mánuði auk bifreiðahlunninda að hámarki 150 þúsund króna á mánuði.

Vanda hefur samið við stjórn KSÍ um kaup og kjör. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins.

Vanda var kjörin formaður KSÍ á aukaþingi í byrjun október. Næsta ársþing KSÍ fer fram í febrúar á næsta ári og þá fær Vanda tækifæri til að endurnýja umboð sitt.

Vanda er fyrsta konan sem er formaður KSÍ og fyrsta konan sem er formaður knattspyrnusambands í Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×