Skoðun

Hin nýja inn­viða­skuld

Kristrún Frostadóttir skrifar

Árleg framlög til loftslagsmála þegar best lætur í núgildandi fjármálaáætlun nema 13 milljörðum kr. Þetta er jafnhá upphæð og rennur í beina ríkisstyrki til landbúnaðar á Íslandi. Sem er einmitt grein sem losar umtalsvert af CO2 en ríkisstjórninni dettur ekki í hug að nýta þessa stóru stuðningsgreiðslu til að vinna með loftslagsmarkmiðum okkar. Beina fjármagninu frá framleiðslutengdri kjöt- og mjólkurframleiðslu í sjálfbærari landnýtingu.

Þessir 13 milljarðar eru hverfandi í samanburði við aðgerðir nágrannaþjóða okkar í Evrópu. „Græni díll“ Evrópusambandsins gerir ráð fyrir að hátt í 2% landsframleiðslu Evrópulandanna á ári hverju til 2030 verði varið til grænnar umbreytingar. Það er ígildi rúmlega 60 milljarða kr. hér á landi, fimmfalt á við okkar plön.

Þetta er hluti af atvinnustefnu Evrópusambandsins, langtímasýn sem felst í því að endurhanna hagkerfið til að mæta breyttum tímum. Hér á Íslandi virðist það hins vegar vera æðsta markmið ráðandi stjórnmálaafla að halda sjálfum sér í einu lagi á milli kjördaga. Skuldastöðu ríkissjóðs eftir náttúruvá er ítrekað veifað sem rauðu flaggi en hvergi blikka viðvörunarljósin vegna vanfjármagnaðar loftslagsáætlunar.

Dæmið gengur einfaldlega ekki upp

„Það sem Ísland kem­ur með að borðinu er að við erum eitt af ell­efu ríkj­um sem að hafa lög­fest mark­mið um kol­efn­is­hlut­leysi og það árið 2040, á meðan að samn­ing­ur­inn hvet­ur ríki til að vera kol­efn­is­hlut­laus upp úr miðri öld­inni. Þannig það hef­ur Ísland fram á að færa,“ segir umhverfisráðherra. Þetta eru semsagt stóru loftslagsskrefin á Íslandi. Að vera fyrr til að lögfesta óskilgreint markmið eftir áratugi.

Ástralía tilkynnti um kolefnishlutleysi árið 2050 í síðustu viku. Samhliða birtist áætlun um samdrátt í losun fyrir árið 2030 sem myndi leiða til 4 gráðu hlýnunar ef heimurinn fylgdi. Óútfærð framtíðarloforð eru notuð sem afsökun fyrir aðgerðaleysi næstu ára. Og Ísland leikur nú sama leik: við hreykjum okkur af langtímafyrirheitum um kolefnishlutleysi en stígum ekkert nema hænuskref næstu árin.

Við ætlum að ná kolefnishlutleysi 2040, á undan flestum löndum heims. Samt er markmið okkar um samdrátt í losun fyrir 2030 aðeins 40%. Og raunar ekkert sem bendir til að við náum þessu markmiði m.v. núverandi aðgerðir. Danmörk stefnir á 70% samdrátt fyrir 2030, Svíþjóð 63% og Noregur 55% þrátt fyrir markmið um kolefnishlutleysi áratug síðar en við.

Hvergi í Evrópu er losun á mann jafnmikil og á Íslandi. Við erum eitt af tveimur löndum álfunnar þar sem losun á mann hefur aukist frá 1990. Ríkisstjórn sem er jafnupptekin af skammtímaskuldabókhaldi og raun ber vitni ætti að sjá að þessir útreikningar ganga ekki upp.

Skortur á framtíðarinnviðum

Þetta var kannski fyrirséð. Sitjandi fjármálaráðherra stýrði niðurskurði í innviðafjárfestingu í nafni skuldaniðurgreiðslu á sínum tíma sem hefur margfaldað kostnað við opinberu kerfin okkar. Nú eru það framtíðarinnviðir samfélagsins sem líða fyrir metnaðarleysi í loftslagsmálum, þá úreltu sýn að sóknartækifæri geti ekki falist í að verjast loftslagsvánni með alvöru og fjármögnuðum aðgerðum. Þröngsýni í hagstjórn og skammsýnir yfirborðsútreikningar rýra nú getu okkar til að sækja fram, skapa spennandi störf í heimi tæknilausna á sviði loftslagsmála og búa til bakreikning af áframhaldandi náttúruhamförum.

Góðir hlutir gerast stundum hægt, en ekki í tilviki loftslagsmála. Við erum í kappi við tímann og kostnaður vegna loftslagsmála mun aðeins aukast ef við frestum alvöru aðgerðum. Fyrsta skrefið í átt að alvöru loftslagsaðgerðum er að viðurkenna, hversu óþægilega sem það kann að hljóma, að dæmi núverandi ríkisstjórnar gengur ekki upp. Að ef Ísland ætlar að vera réttum megin í sögunni þurfum við að gera betur og setja markið hærra.

Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×