Lögregla segir ákæru væntanlega í máli stúlkunnar sem var numin á brott Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. nóvember 2021 08:14 Yfirvöld segja fjölskylduna hafa gert mikið af því að knúsast og kúra síðan Cleo var bjargað. AP/AAP/Richard Wainwright Lögregluyfivöld í Vestur-Ástralíu gera ráð fyrir að maður sem er grunaður um að hafa numið hina fjögurra ára Cleo Smith á brott frá fjölskyldu sinni og haldið fanginni á heimili sínu í tvær vikur verði ákærður innan tíðar.
Maðurinn, sem er 36 ára, er nú í haldi lögreglu eftir að hafa verið færður tvisvar á sjúkrahús vegna tilrauna til sjálfsskaða. Lögregla segir meiðsl hans ekki hafa verið alvarleg. Fjölskylda Cleo var í tjaldferðalagi þegar stúlkan hvarf frá afskekktu tjaldsvæði um það bil 75 kílómetrum norður af bænum Carnarvon. Stúlkan fannst á heimili mannsins í borginni, sem er skammt frá heimili fjölskyldunnar. Lögregla segir manninn hins vegar ekki tengjast fjölskyldu Cleo og hann var ekki heima þegar stúlkunni var bjargað. Lögregla hefur ekki gefið upp nákvæmlega hvernig þeir fundu Cleo. Yfirvöld segja fjölskylduna hafa verið að taka því rólega síðustu daga og unnið sé að því að undirbúa Cleo fyrir skýrslutöku. „Þetta hlýtur að vera gríðarlega erfitt fyrir þau en þegar öllu er á botninn hvolft viljum við árangursríka saksókn,“ hefur Guardian eftir einum lögreglumannanna sem bjargaði stúlkunni. Lögregla hefur birt upptökur af því þegar Cleo var bjargað. "My name is Cleo." pic.twitter.com/xiy59x4kjP— WA Police Force (@WA_Police) November 4, 2021
Ástralía Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Sagður hafa nauðgað fatlaðri konu og látið son hennar horfa á Innlent Tveir góðkunningjar flúðu lögregluna á hlaupahjóli Innlent Albert ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Innlent Fatasöfnunargámar Rauða krossins fjarlægðir á næstu dögum Innlent Fimm grímuklæddir brutu upp útidyrahurð Innlent Enn slasast tugir í ókyrrð Erlent „Enn fólk að birtast sem hafði ekki hugmynd um þetta“ Innlent Hafnaði utanvegar í Vatnsskarði Innlent Íslandsbankahúsið rústir einar Innlent Fleiri fréttir Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sjá meira