Forsætisráðherra Norður-Makedóníu segir af sér Atli Ísleifsson skrifar 1. nóvember 2021 12:45 Zoran Zaev ávarpaði flokksmenn sína í gærkvöldi þar sem hann tilkynnti um afsögn sína. AP Forsætisráðherra Norður-Makedóníu, Zoran Zaev, hefur sagt af sér embætti. Afsögnin kemur í kjölfar bágrar niðurstöðu stjórnarflokksins í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum.
Zaev greindi frá afsögninni í gærkvöldi og sagðist hann vilja axla ábyrgð á lélegri kosningu Jafnaðarmannaflokks hans í sveitarstjórnarkosningunum. „Ég axla ábyrgð á stöðunni. Ég segi af mér sem forsætisráðherra og flokksformaður. Ég hef skilað frelsi og lýðræði og lýðræði hefur í för með sér að maður axlar ábyrgð,“ sagði Zaev. Zaev hefur talað fyrir nánari tengslum Norður-Makedóníu og Evrópusambandsins. Þannig átti hann mikinn þátt í leysa úr áralangri deilu Norður-Makedóníu og Grikkja um nafnið Makedónía þar sem niðurstaðan var sú að Makedónía tók formlega upp nafnið Norður-Makedónía. Hann segist styðja það að annar maður úr ranni Jafnaðarmannaflokksins taki nú við forsætisráðherra, frekar en að þingkosningum verði flýtt. Í höfuðborginni Skopje hlaut frambjóðandi stjórnarandstöðunnar, Danela Arsovska, 56 prósent atkvæða í kosningum til borgarstjóra, en frambjóðandi Jafnaðarmanna, Petre Sigelov, um 40 prósent. Í frétt DW segir að svo virðist sem að stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, miðhægriflokkurinn VMRO-DPMNE, hafi unnið sigra í áttatíu sveitarfélögum, en Jafnaðarmannaflokkurinn í innan við tuttugu. Til samanburðar vann Jafnaðarmannaflokkurinn sigra í 57 sveitarfélögum í kosningunum 2017. Zaev gegndi fyrst embætti forsætisráðherra Norður-Makedóníu á árunum 2017 til ársbyrjunar 2020 og aftur frá ágúst 2020.
Norður-Makedónía Mest lesið „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira