Innlent

Á­hyggju­efni þegar „Pétur og Páll“ eru byrjaðir í of­fram­leiðslu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Daníel Örn Hinriksson er formaður Hundaræktarfélags Íslands.
Daníel Örn Hinriksson er formaður Hundaræktarfélags Íslands. Úr einkasafni/Vísir/Arnar

Formaður Hundaræktarfélag Íslands telur dýralækni hafa gengið fulllangt með því að ráða fólki frá því að kaupa sér flatnefjuð gæludýr. Hann telur ræktendur almennt ábyrga, vandamálið liggi í óskráðri offramleiðslu á dýrunum. 

Rætt var við Hönnu Maríu Arnórsdóttur dýralækni á Dýraspítalanum í Garðabæ í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær um heilsufarsvanda sem flatnefjaðar hunda- og kattategundir eins og Pug, bolabítar og persar, glíma við vegna óábyrgrar ræktunar í gegnum tíðina. Hún hvatti ræktendur til umhugsunar og réði fólki frá því að kaupa sér slík dýr.

Daníel Örn Hinriksson formaður Hundaræktarfélags Íslands segist taka undir málflutning Hönnu - upp að vissu marki. Gríðarleg aukning í vinsældum þessara tegunda hafi bakað dýrunum vandræði.

„Þegar Pétur og Páll eru farnir að para hundana sína bara til að para þá og búa til einhverja hvolpa og búa til peninga þá auðvitað er það áhyggjuefni,“ segir Daníel.

„Þetta eru tegundir sem er búið að vera að rækta jafnvel í hundruð ára og vandamálin held ég eru að koma upp með offramleiðslu á þessum hundategundum, þar sem ábyrg ræktunarstefna er ekki fyrir hendi og mér fannst hún taka svolítið djúpt í árinni að beina fólki frá því að kaupa þessar hundategundir. Ég myndi alltaf mælast til þess að fólk myndi kynna sér vel ræktandann sem það ætlar að versla við.“

Alveg eins hægt að grípa til útrýmingar

Ekki sé hægt að alhæfa að allir hundar með flatt nef séu óheilbrigðir. Daníel telur ekki að leggja ætti bann á ræktun ákveðinna tegunda með ýkt útlitseinkenni, eins og gripið hafi verið til í sumum löndum.

„Þá er alveg eins hægt að grípa bara til útrýmingar á hundategundunum, mér fyndist mikið frekar að hundaræktarfélögin og dýralæknar ættu að taka höndum saman og reyna að fara saman að því að bæta heilbrigði þessara tegunda. Og þetta liggur náttúrulega líka hjá þeim sem ætlar að fá sér þessa hundategund, að hann vandi valið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×