Viðskipti innlent

ÚR selur skuldabréf fyrir sjö milljarða króna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðmundur Kristjánsson er aðaleigandi Útgerðarfélags Reykjavíkur.
Guðmundur Kristjánsson er aðaleigandi Útgerðarfélags Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm

Stjórn Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. samþykkti í síðustu viku að gefa út skuldabréf að andvirði rúmlega sjö milljarða króna.

Hafa skuldabréfin þegar verið seld til innlendra fagfjárfesta og er uppgjör viðskiptanna fyrirhugað þann 15. nóvember með hefðbundnum fyrirvörum um endanlega skjalagerð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÚR.

Gefnir verða út tveir skuldabréfaflokkar - UR 151124 sem eru óverðtryggð skuldabréf til þriggja ára að fjárhæð 1.360 milljónir króna með 5,3% ávöxtunarkröfu og UR 151128 sem eru verðtryggð skuldabréf til sjö ára að fjárhæð 5.680 milljónir króna með 2,5% ávöxtunarkröfu. Unnið verður að skráningu skuldabréfaflokkanna á aðalmarkað Nasdaq Iceland.

„ÚR er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem leggur áherslu á arðsemi og sjálfbæra nýtingu auðlinda. Með stefnumótandifjárfestingum í aflaheimildum og traustum sjávarútvegsfyrirtækjum hefur félagið byggt upp eignir að verðmæti um 430 milljónir evra. Eiginfjárhlutfall félagsins er sterkt – um 57%. Rekstur félagsins er í dag þríþættur. Í fyrsta lagi er ÚR hefðbundið íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki, sérhæft í rekstri frystitogara. Í öðru lagi er félagið stærsti hluthafinn í Brim hf. sem er annað skráða sjávarútvegsfélagið á Íslandi og í þriðji lagi vinnur félagið að nýsköpun og vöruþróun í sjávarútvegi í gegnum dótturfélagið ÚR Innovation. Tilgangur skuldabréfaútgáfunnar núna er að treysta og efla fjármögnun félagsins til framtíðar,“ segir í tilkynningu frá ÚR.

Arctica Finance hefur umsjón með sölu og skráningu skuldabréfaútgáfanna fyrir hönd Útgerðarfélags Reykjavíkur.

„Við hjá ÚR erum gríðarlega stolt og ánægð með viðtökurnar á meðal fagfjárfesta vegna skuldabréfaútgáfunnar. Viðbrögðin sýna að fjárfestar treysta vel rekstri félagsins og að innlendur fjármálamarkaður hefur trú á íslenskum sjávarútvegi og á starfsfólki, stjórnendum, stjórn og eiganda ÚR,“ segir Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×