Innlent

Sprengju­sér­fræðingar frá fimm­tán löndum æfa á Kefla­víkur­flug­velli

Atli Ísleifsson skrifar
Að þessu sinni eru þátttakendurnir frá fimmtán þjóðum og alls eru þrjátíu lið skráð til leiks.
Að þessu sinni eru þátttakendurnir frá fimmtán þjóðum og alls eru þrjátíu lið skráð til leiks. Landhelgisgæslan

Hátt í þrjú hundruð sérfræðingar munu koma að Northern Challenge, árlegri alþjóðlegri æfingu sprengjusérfræðinga, sem hefst á Keflavíkurflugvelli í dag og stendur fram í næstu viku.

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að æfingin fari að stærstum hluta fram á starfssvæði Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli, en þetta er í tuttugasta sinn sem æfingin er haldin.

„Markmið æfingarinnar er að æfa viðbrögð við hryðjuverkum þar sem heimatilbúnum sprengjum hefur verið komið fyrir. Verkefni sprengjusérfræðinganna er að leysa slíkan vanda. Samskonar búnaður og fundist hefur víðs vegar um heim er útbúinn og aðstæður hafðar eins raunverulegar og kostur er. Æfingin fer fram við fjölbreyttar aðstæður, t.d. á flugvelli, í höfn, í skipi og við bryggju. Sérhæfð stjórnstöð er jafnframt virkjuð þar sem öll uppsetning og vinnubrögð eru samkvæmt alþjóðlegu vinnulagi Atlantshafsbandalagsins.

Æfingin veitir sprengjusérfræðingum, sem koma hvaðanæva að úr heiminum, einstakt tækifæri til að samhæfa aðgerðir auk þess að miðla reynslu og þekkingu sinni til annarra liða. Northern Challenge hefur notið mikilla vinsælda á undanförnum árum og hefur skipað sér sess sem ein mikilvægasta æfing sprengjusérfræðinga í Evrópu.

Að þessu sinni eru þátttakendurnir frá 15 þjóðum og alls eru 30 lið skráð til leiks. Þeir sem koma lengst að eru frá Nýja-Sjálandi en að æfingunni koma hátt í 300 manns,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×