Innlent

Náðu að knýja fram upphitaðan körfuboltavöll

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Alfa, Signý og Sigurður eiga öll sæti í lýðræðisþingi Grunnskólans í Stykkishólmi. 
Alfa, Signý og Sigurður eiga öll sæti í lýðræðisþingi Grunnskólans í Stykkishólmi. 

Upphitaður körfuboltavöllur, frisbígolf og slökunarherbergi er á meðal þess sem krakkar í lýðræðisþingi í Stykkishólmi hafa beitt sér fyrir, kosið um og komið í gegn á undanförnum misserum. Krakkarnir segja mikilvægt að þeirra rödd fái líka að heyrast í samfélaginu en eru ekkert endilega vissir um að þá langi á þing.

Lýðræðisþingið er mikilvægur liður í Grunnskólanum í Stykkishólmi, en þar geta nemendur í sjöunda til tíunda bekk lagt sitt af mörkum í mótun skólastefnunnar og lagt fram hugmyndir eða tillögur til úrbóta sem skólastjórnendur taka síðan til greina. Skólastjórinn segir það hafa reynst afar vel að hafa nemendur í ráðum og nemendurnir sjálfir eru ekki síður ánægðir.

„Við erum búin að vera í þessu síðan í sjöunda bekk, um það bil. Þá fáum við að velja hvort við viljum vera í þessu eða ekki og við vildum það,” segir Signý Rós Sævarsdóttir, nemandi í níunda bekk.

Foto: Stykkishólmur/Sigurjón

Krakkarnir segjast sammála því að mikilvægt sé að hafa rödd í samfélaginu og að skoðanir þeirra séu teknar til greina.

„Við viljum fá að koma með okkar rödd og hugmyndir sem við höfum,” segir Alfa Magðalena Frost, sem er líka í níunda bekk.

Nú nýverið fengu nemendurnir nokkurs konar slökunarherbergi sem þeir geta nýtt í frímínútum og annað stórt mál er hádegismaturinn. „Valið í bekknum okkar var pítsa og grjónagrautur. Það er rosalega vinsælt,” segir Signý.

Þeim finnst skemmtilegt að fá á vissan hátt að taka þátt í pólitík. „Það hefur góða og slæma tíma,” segir Sigurður Mar Magnússon, í tíunda bekk, sem segist alveg geta hugsað sér að starfa á þingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×