Innlent

Kvika gæti verið að finna sér nýja leið til yfirborðs

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur við Háskóla Íslands. 
Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur við Háskóla Íslands.  Foto: Vilhelm Gunnarsson

Dregið hefur úr stærð skjálftanna við Keili undanfarna daga en virknin er þó enn mikil. Um 8800 skjálftar hafa mælst á svæðinu frá því að hrinan hófst þann 27. september síðastliðinn. Ekki er hægt að útiloka að kvika sé á hreyfingu á miklu dýpi. 

Mögulegt er að kvika sé að reyna að finna sér leið til yfirborðs þrátt fyrir að það sjáist ekki í gervihnattagögnum. Þetta segir Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur við Háskóla Íslands, í samtali við Fréttastofu. 

Bendir hann á að stærð skjálftanna sé ekki endilega bein vísbending um að kvika sé á leiðinni upp heldur þurfi að horfa til þess hversu mikil virknin er. „Ein hugsanleg skýring á að [virknin] sé viðvarandi er sú að kvika sé að reyna að finna sér nýja leið til yfirborðs," segir Þorvaldur. 

Þorvaldur vísar til þess að það sé enn hraunkvika að koma upp nálægt yfirborðinu við gosið í Geldingadölum og því sé gosið enn í gangi þar þrátt fyrir að það fari lítið fyrir því. Það gæti þýtt að gosinu í Geldingadölum sé við það að ljúka en einnig er mögulegt að kvikan sé að fara aðrar leiðir. 

„Það gæti líka alveg eins verið að það séu einhver höft þarna ofarlega í gosrásinni sem eru að valda því að kvikan á erfitt með að komast upp í Geldingadölum og er því að leita sér nýrra leiða til að komast upp á yfirborðið,“ segir Þorvaldur. 

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu hafa um 200 skjálftar mælst við Keili frá því um miðnætti og var sá stærsti á sjötta tímanum í morgun 2,4 að stærð. Hvasst er nú á svæðinu og því mögulegt að mælarnir nái ekki að mæla alla þá skjálfta sem verða á svæðinu.

Í gær mældust í heildina um 900 skjálftar á svæðinu og 1500 í fyrradag. Langflestir skjálftarnir í gær voru undir einn að stærð og enginn þeirra var yfir 3 að stærð. Síðasti stóri skjálftinn varð á þriðjudag og var 3,4 að stærð.


Tengdar fréttir

Engin skýr merki um kviku við Keili

Nýjustu gervihnattagögn sýna engin skýr merki um að kvika brjóti sér leið til yfirborðs í kringum Keili á Reykjanesi. Ekki er þó talið útilokað að kvika sé á hreyfingu á það miklu dýpi að gervihnettir greini hana ekki.

Gosið legið niðri í tvær vikur

Ekkert hraunflæði hefur verið úr gígnum í Geldingadölum frá 18. september síðastliðinn. Líklegt er þó að eitthvað sé kraumandi undir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×