Lakers sækir enn einn ellismellinn Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 10. september 2021 09:30 DeAndre Jordan er mættur til Los Angeles. Jonathan Bachman/Getty Images Hinn 33 ára gamli DeAndre Jordan hefur samið við Los Angeles Lakers og mun leika með liðinu í NBA-deildinni í körfubolta í vetur.
Lakers heldur áfram að sækja menn á fertugsaldri en áður hafa þeir Russell Westbrook, Carmelo Anthony, Trevor Ariza, Dwight Howard og Rajon Rondo. DeAndre Jordan leikur í stöðu miðherja og gefur Lakers ákveðna vigt undir körfunni. Mun hann eflaust deila mínútum í „fimmunni“ með D. Howard og Anthony Davis. Með því að sækja Jordan virðist sem dagar Marc Gasol – enn einn leikmaðurinn á fertugsaldri – séu taldir í borg englanna. OFFICIAL: That's our DJ pic.twitter.com/7iUFwcxHd5— Los Angeles Lakers (@Lakers) September 9, 2021 Jordan hefur spilað í NBA-deildinni í 13 ár og lék síðast með stjörnuliði Brooklyn Nets. Var hann í byrjunarliði í 43 af þeim 57 leikjum sem hann spilaði með að meðaltali 7,5 stig, 7,5 fráköst og 1,6 stoðsendingu í leik. Þá spilaði hann að meðaltali 21,9 mínútu í leik. Miðherjinn hefur alls leikið 932 leiki í NBA-deildinni og veigrar sér ekki að leika fyrir erkifjendur. Hann spilaði með Nets eftir að hafa verið á mála hjá New York Knicks og nú er hann mættur til Lakers eftir að hafa leikið með Clippers á árum áður. Þá lék hann einnig með Dallas Mavericks. Hann er þekktur fyrir að spila góða vörn ásamt því að vera virkilega góður í klefanum. Hann ætti að smellpassa inn í Lakers-lið þar sem meðalaldurinn er í hærra lagi.
Körfubolti NBA Mest lesið Freyr um rangan fréttaflutning: „Þetta særði mig mjög mikið“ Fótbolti Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Körfubolti Markvarslan Alisson í blóð borin Enski boltinn Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Enski boltinn Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Handbolti Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fótbolti „Varnarleikurinn var skelfilegur” Handbolti Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Körfubolti Fleiri fréttir Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Sjá meira
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport