Innlent

Minnst 84 greindust smitaðir í gær

Árni Sæberg skrifar
Frá Landspítala.
Frá Landspítala. Vísir/Einar

Samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is greindust 84 smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær.

36 þeirra smituðu voru í sóttkví við greiningu en 48 utan sóttkvíar.

Átján eru á sjúkrahúsi með Covid-19 en þeim fækkar um fjóra milli daga. Á gjörgæslu fækkar sjúklingum einnig en þeir eru fimm í dag og fækkar um tvo frá því í gær.

Í einangrun með virkt Covid-19 smit eru 908. 1.358 eru í sóttkví og 930 eru í skimunarsóttkví.

Greind voru 2.088 einkennasýni, 1.067 sýni á landamærunum og 937 sýni úr sóttkvíar- og handahófssýnatöku.

Þrír greindust með virkt smit við komu til landsins og einn bíður mótefnamælingar.

Alls hafa 10.341 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa þrjátíu dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

262.829 Íslendingar eru fullbólusettir.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×