Bíó og sjónvarp

Kvikmyndin Skjálfti valin til sýningar á TIFF

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Frá tökum á kvikmyndinni Skjálfti. Hér má sjá Anítu Briem og Eddu Björgvinsdóttur í hlutverkum sínum.
Frá tökum á kvikmyndinni Skjálfti. Hér má sjá Anítu Briem og Eddu Björgvinsdóttur í hlutverkum sínum. Lilja Jónsdóttir

Tilkynnt hefur verið hvaða myndir verða sýndar á Toronto International Film Festival í ár og mun Ísland eiga sinn fulltrúa á hátíðinni. Mynd Tinnu Hrafnsdóttur, Skjálfti, tekur þátt í TIFF Industry Selects hluta hátíðarinnar í ár.

Tinna er bæði handritshöfundur og leikstjóri Skjálfta, sem kynnt er sem Quake á erlendri grundu. Myndin er byggð á skáldsögu Auðar Jónsdóttur, Stóri skjálfti. Með aðalhlutverk fara Aníta Briem, Edda Björgvinsdóttir og Jóhann Sigurðsson. Framleiðandi myndarinnar er Hlín Jóhannesdóttir

Tinna deildi gleðifréttunum á samfélagsmiðlum í dag og skrifaði einfaldlega: 

„Megi myndin okkar fara sem víðast.“

TIFF er stærsta kvikmyndahátíð í Norður-Ameríku. 

„Þegar Saga vaknar upp eftir heiftarlegt flogakast á Klambratúni man hún lítið sem ekkert hvað gerðist í aðdraganda þess. Í leit hennar að upplýsingum um sjálfa sig og sína nánustu fara minningar sem Saga bældi niður sem barn að koma upp á yfirborðið, minningar sem neyða hana til að horfast í augu við sjálfa sig og fjölskyldu sína sem tekist hafði að þegja ógnvænlegt leyndarmál í hel.“ sagði Tinna um söguþráðinn í viðtali við Vísi fyrr á árinu. 

Sýnishornið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Stóri skjálfti verður að kvikmynd

„Þetta er gríðarlega sterk og áhrifamikil saga og margt við efnistök höfundar sem er mjög spennandi fyrir kvikmyndamiðilinn.“

Fyrsta sýnishornið úr kvikmyndinni Skjálfti

Í dag var frumsýnt fyrsta sýnishornið úr íslensku kvikmyndinni Skjálfti. Með aðalhlutverk fara Aníta Briem, Edda Björgvinsdóttir og Jóhann Sigurðsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.