Innlent

Starfs­maður Hring­ekjunnar smitaður

Atli Ísleifsson skrifar
Verslunin verður lokuð í dag vegna skimana annars starfsfólks.
Verslunin verður lokuð í dag vegna skimana annars starfsfólks. Hringekjan

Verslunin Hringekjan í Þórunnartúni í Reykjavík verður lokuð í dag eftir að starfsmaður verslunarinnar greindist smitaður af kórónuveirunni.

Umræddur starfsmaður var síðast við störf síðastliðinn föstudag, 20. ágúst og hafa viðskiptavinir sem sóttu verslunina heim í síðustu viku verið beðnir um að huga sérstaklega vel að sóttvörnum næstu daga og fara í skimun finni þeir fyrir einkennum Covid-19.

Frá þessu segir í færslu á Facebook-síðu Hringekjunnar. Þar er ennfremur tekið fram að verslunin hafi verið sótthreinsuð en verði lokuð í dag, 23. ágúst vegna skimana annars starfsfólks verslunarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×