Reyndi að ganga til New York en rak á land í Flórída Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 27. júlí 2021 21:56 Hér má sjá hamstrahjólið, eins og því hefur verið lýst, sem Baluchi ætlaði að ferðast í. Twitter/FlaglerSheriff Heppnin var ekki með manni á fimmtugsaldri sem ætlaði að ganga til New York frá Flórída, yfir sjóinn, í heimagerðu hamstrahjóli sem útbúið var flothylkjum.
Þetta er ekki fyrsta skiptið sem Reza Baluchi hefur gert tilraun til þessa, heldur það þriðja. Þriðja skiptið gekk ekki betur en svo að hann var kominn um 40 kílómetra á leið þegar hann þurfti að snúa aftur í land í St. Augustine. Meðferðis hafði hann þriggja vikna birgðir en hann komst að því sólarhring eftir að hann lagði af stað að auka GPS-tækið sem hann hafði meðferðis og hleðslusnúrur höfðu horfið í sjóinn. Hann hafi því neyðst til að snúa aftur í land. Hér má sjá Baluchi við fararskjótann.Facebook/Reza Baluchi Við honum tóku furðulostnir strandargestir sem gátu ekki annað en hlegið að honum, Baluchi til mikillar mæðu. „Ég opna dyrnar og hoppa út,“ segir hann í samtali við New York Times. „Þau hlæja að mér. Þau eru að taka myndir af mér. Ég veit hvað ég er að gera. Ég er ekki heimskur.“ Baluchi hefur verið búsettur í Bandaríkjunum í nokkur ár en er frá Íran, þar sem hann var atvinnureiðhjólamaður. Baluchi segir í samtali við Times að hann hafi fengið hæli í Bandaríkjunum en hafi síðan þá upplifað heimilisleysi og frekari erfiðleika. Hann hafi ætlað að „ganga“ til New York gegn áheitum til styrktar heimilislausum, Landhelgisgæslu Bandaríkjanna, lögreglunni og slökkviliði.
Bandaríkin Mest lesið Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Innlent Vildi drepa soninn svo hann kæmist til himna Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent Alræmdi túristahópurinn tók líka yfir pítsustað Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið vegna norðan áhlaups Veður Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Erlent Stór aurskriða féll við Eyrarhlíð Innlent „Sænska ástandið“ orðið að norrænu Innlent „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Innlent Fleiri fréttir Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Ganga til kosninga í febrúar Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu „Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon Fimmtíu þúsund hermenn sagðir undirbúa gagnsókn í Kúrsk Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Sakar Orbán um „ungverskt Watergate-hneyksli“ Vill losna við tálma úr vegi sínum Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust Ishiba áfram forsætisráðherra þrátt fyrir kosningatap Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Aldrei jafn margar drónaárásir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Sjá meira