Viðskipti innlent

Norður­ál ræðst í fimm­tán milljarða fram­kvæmdir

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Ráðist verður í fimmtán milljarða króna framkvæmdir á Grundartanga árið 2024.
Ráðist verður í fimmtán milljarða króna framkvæmdir á Grundartanga árið 2024. Verkís.is

Norðurál og Landsvirkjun hafa gert með sér samkomulag um þriggja ára framlengingu á raforkusölusamningi og mun hann taka gildi þann 1. janúar 2023. Í framhaldinu mun Norðurál fara í fimmtán milljarða króna framkvæmdir: byggingu steypuskála við álverið á Grundartanga.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í morgun. Í nýja steypuskálanum verða álboltar framleiddirog munu framkvæmdirnar fyrst og fremst fara fram árið 2024. Með þessu skapast um hundrað tímabundin störf og 40 störf til framtíðar í steypuskálanum.

Tveir raforkusamningar gilda á milli Landsvirkjunar og Norðuráls en sá fyrri og stærri var gerður árið 1997 og heyrir upp á 161 megavatt. Árið 2016 var gerð framlenging á samningnum, sem mun gilda til 2023, og segir til um að tenging raforkuverðs við álverið sé afnumin. Nú er raforkuverðið því tengt verði raforkumarkaðs Norðurlandanna, Nord Pool.

Framlengingin sem verið var að semja um aftengir hins vegar raforkuverið Nord Pool og verður það á föstu umsömdu verði. Þá verður selt magn aukið og verða 182 megavött í stað 161.


Tengdar fréttir

Losun frá íslenskum iðnaði dróst aðeins saman

Stöðvun á starfsemi kísilvers PCC á Bakka í fyrra er talin meginástæða 1,8% samdráttar á losun gróðurhúsalofttegunda frá iðnaði á Íslandi sem heyrir undir evrópsks viðskiptakerfis með losunarheimildir á milli ára í fyrra.

Gríðarleg hækkun álverðs bætir hag Landsvirkjunar

Gríðarlegar verðhækkanir á málmum, bæði áli og kísli, stórbæta afkomu Landsvirkjunar en álverð hefur hækkað um áttatíu prósent á einu ári. Raforkukaupendur hafa samtímis aukið notkun sína og stefnir í að raforkukerfið verði fullnýtt.

Álverð rýkur upp og búið að hækka um 59 prósent

Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað hratt á undanförnum vikum og fór í dag í 2.330 dollara tonnið. Það er 59 prósenta hækkun á ellefu mánuðum en um miðjan maí í fyrra fór verðið niður undir 1.460 dollara. Hækkunin frá því í byrjun febrúar nemur átján prósentum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×