Lífið

Axla ábyrgð, hætta með þáttinn og biðja íbúa í Eyjum afsökunar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Heiðar og Snæbjörn hafa haldið úti Eld og brennistein.
Heiðar og Snæbjörn hafa haldið úti Eld og brennistein.

Snæbjörn Brynjarsson og Heiðar Sumarliðason sem haldið hafa úti útvarpsþættinum Eldur og brennisteinn, fyrst á X-inu og síðar á Vísi, hafa ákveðið að láta staðar numið með þáttinn. 

Þeir segjast hafa farið yfir strikið í síðasta þætti sínum þar sem þeir fjölluðu um Þjóðhátíð og lásu meðal annars upp og lögðu út af umdeildri bloggfærslu frá árinu 2012.

„Það er eins og þetta sé einhver íþrótt innfæddra að nauðga konum sem koma frá meginlandinu,“ voru ummæli sem vöktu athygli í gær. 

Ýmsir hafa fordæmt ummælin og má þar nefna Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra í Vestmannaeyjum og forvera hennar Elliða Vignisson. Þá skrifaði Sveinn Waage pistil á Vísi þar sem hann snerti á ummælunum.

„Eftir að hafa rætt við fólk í Vestmannaeyjum, heyrt upplifun þeirra og farið yfir framgöngu okkar í þættinum langar okkur að ítreka afsökunarbeiðni okkar. Við fórum gjörsamlega yfir strikið og við skömmumst okkar fyrir framgöngu okkar í þættinum. Við viljum biðja alla íbúa Vestamanneyja auðmjúklega afsökunar,“ segja Snæbjörn og Heiðar.

Þeir hafa ákveðið að taka þáttinn af dagskrá.

„Við höfum ákveðið að láta staðar numið með Eld og brennistein. Við erum einlæglega leiðir yfir þessu og vonsviknir með eigin framgöngu. Við vonum innilega að Vestmannaeyingar sjái að okkur þyki þetta í raunverulega leitt og að við viljum axla ábyrgð á þessum mistökum okkar.“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Snæbjörn axlar ábyrgð á hegðun sinni. Það gerði hann sem varaþingmaður Pírata árið 2019 fyrir að hafa verið dónalegur við blaðakonu á Kaffibarnum, hegðun sem hann sagði ekki sæma kjörnum fulltrúa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.