Erlent

Höfðu uppi á týndri rauðri pöndu í dýra­garði

Atli Ísleifsson skrifar
Jang slapp úr gerði sínu í síðustu viku en er komin í leitirnar.
Jang slapp úr gerði sínu í síðustu viku en er komin í leitirnar. Zoo Duisburg

Starfsmenn dýragarðsins í Duisburg í Þýskalandi hafa haft uppi á Jang, rauðri pöndu, sem hafði sloppið úr gerði sínu og haldið á vit ævindýranna í dýragarðinum. Jang fannst uppi í nálægri trjákrónu á lóð dýragarðsins eftir að leit hafði staðið yfir í um 36 klukkustundir.

Rauðar pöndur eru í útrýmingarhættu og segir í frétt DW að einungis lifi um 10 þúsund slíkar pöndur villt.

Notast var við kíkja og hitamyndavélar í leitinni að Jang, en hann slapp úr búrinu á fimmtudaginn í síðustu viku og fannst á föstudaginn. Fóru starfsmenn upp í stiga í slökkviliðsbíl til að ná honum aftur niður.

Talið er að Jang hafi komist út úr gerði sínu með því að klifra yfir girðingu með aðstoð „hjálpartækis í formi plöntu“ eins og það er orðað í tilkynningu frá dýragarðinum. Var umrædd planta klippt til áður en Jang var aftur komið fyrir í gerðinu.

Rauðar pöndur eiga ekki svo mikið sameiginlegt með svörtum og hvítum nöfnum sínum, ef frá er talin ást þeirra beggja á bambus. Rauðu pöndurnar eru mun minni en risapöndurnar sem margar verða um einn og hálfur metri á hæð og um 150 kíló að þyngd. Rauðu pöndurnar verða sjaldnast mikið stærri en venjulegir kettir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×