Innlent

Katrín líkti Sæmundi fróða við tístara

Árni Sæberg skrifar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sló á létta strengi á Oddahátið í dag.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sló á létta strengi á Oddahátið í dag. Vísir/Vilhelm

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði Oddahátið í dag. Hátíðin fór fram á Rangárvöllum í tilefni þrjátíu ára afmælis Oddafélagsins.

Í erindinu tengdi Katrín saman sögu og tilurð kirkjustaðarins Odda sem hluta af menningarsögulegu og sameiginlegu minni Íslendinga við samfélagsmiðla nútímans. 

Enn fremur ræddi hún mikilvægi slíkra menningar- og fræðasetra fyrir landið allt.

„Sæmundur fróði dagsins í dag væri vafalaust aðsópsmikill á nýjum miðlum, til dæmis á tístinu og myndi þar fremja galdra sína með því að vera frumlegri en aðrir tístarar. Kannski sæti hann bara á kaffihúsi í Reykjavík enda þyrfti hann ekki annað en síma og 4G. Og það má velta því fyrir sér hvort hann myndi ná til fleiri nú en hann gerði á sínum tíma því vissulega voru sagnarit þess tíma ekki fyrir alla – sagnaritarar voru staddir í bergmálshelli alveg eins og þeir sem tjá sig á forritunum í samtímanum,“ sagði Katrín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×