Viðskipti innlent

Fé­lag Róberts kaupir 17 prósenta í Al­vogen í Banda­ríkjunum

Atli Ísleifsson skrifar
Róbert Wessman er stærsti einstaki hluthafi Aztiq, en hann er einnig forstjóri Alvogen.
Róbert Wessman er stærsti einstaki hluthafi Aztiq, en hann er einnig forstjóri Alvogen. Alvotech

Aztiq Pharma Partners hefur keypt sautján prósenta hlut í Alvogen í Bandaríkjunum, eftir að hafa lokið fjármögnun upp á 12,4 milljarða króna, um hundrað milljóna Bandaríkjadala.

Í tilkynningu frá Aztiq segir að fjármagnið sé notað til að fjárfesta frekar í Alvogen í Bandaríkjunum, en það var bandaríski fjárfestingabankinn Morgan Stanley sem hafði umsjón með fjármögnuninni þar sem alþjóðlegir fagfjárfestar tóku þátt. Forstjóri Alvogen, Róbert Wessman, er stærsti einstaki hluthafi fjárfestingafélagsins Aztiq.

„Árið 2017 útvíkkaði Alvogen í Bandaríkjunum starfsemi sína og stofnaði Almatica Pharma. Almatica leggur höfuðáherslu á að þróa, framleiða og markaðssetja ný tauga-og geðlyf með verkun á miðtaugakerfið. Lyf Almatica mæta þörfum sjúklinga sem núverandi lyf á markaði gera ekki. Markmiðið er að auka aðgengi sjúklinga að nýjum lyfjum sem bæta heilsu þeirra og líðan.

Fjármagnið sem nú kom inn nýtti Aztiq í að kaupa 17% hlut í Alvogen í Bandaríkjunum á gengi sem jafngildir því að eiginfjárvirði fyrirtækisins fyrir aukninguna hafi verið 43 milljarðar króna (350 milljónir Bandaríkjadala).

Alvogen í Bandaríkjunum hefur alfarið verið í eigu Alvogen Lux Holdings, en eftir kaup Aztiq á Alvogen í Bandaríkjunum heldur Aztiq Pharma Partners samanlagt, beint eða óbeint, á um það bil 40 prósenta hlut í fyrirtækinu.“

Langtímafjárfestir

Aztiq Pharma Partners er langtímafjárfestir sem leggur áherslu á fjárfestingar í lyfjaiðnaði, en stærstu eignir Aztiq eru í lyfjafyrirtækjunum Alvogen, Alvotech og Lotus. Fjárfestingahópurinn samanstendur af einstaklingum og alþjóðlegum fjárfestingasjóðum, en stærsti einstaki hluthafi félagsins er Róbert Wessman.

„Alvogen er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki og leggur áherslu á þróun, framleiðslu og sölu á samheitalyfjum, vörumerkjum og lausasölulyfjum um allan heim. Starfssemi fyrirtækisins er í um 20 löndum og hjá því starfa um 1.700 manns. Alvogen rekur fjórar framleiðslu- og þróunarmiðstöðvar í Bandaríkjunum, Kóreu og Taívan. Forstjóri Alvogen er Róbert Wessman,“ segir í tilkynningunni.

Lyf





Fleiri fréttir

Sjá meira


×