England kvað þýsku grýluna í kútinn og er komið áfram Anton Ingi Leifsson skrifar 29. júní 2021 17:51 Sterling fagnar fyrra markinu. Eddie Keogh/Getty
í fótbolta Fótbolti
England er komið í átta liða úrslit Evrópumótsins 2020 eftir að hafa slegið út Þýskaland 2-0 í 16-liða úrslitunum á Wembley í dag. Raheem Sterling og Harry Kane sáu um markaskorið í síðari hálfleiknum. Englendingar höfðu einungis skorað tvö mörk fyrir leikinn í dag en þeir höfðu þó ekki fengið mark á sig. Þeir breyttu um leikskipulag og spiluðu 3-4-3 til að spegla þá þýsku. Þeir ensku voru meira boltann í fyrri hálfleik og það var kraftur í enska liðinu þó að báðum liðum hafi gengið illa að skapa sér opin marktækifæri. Raheem Sterling átti fyrsta skotið utan af velli en Manuel Neuer sá við honum. Harry Maguire fékk svo fínt skallafæri eftir hornspyrnu en skallinn var slakur. Besta færi Þýskalands í fyrri hálfleik fékk Timo Werner er hann komst einn gegn Jordan Pickford utarlega í teignum en Pickford sá við honum. Besta færi fyrri hálfleiks fékk Harry Kane. Boltinn féll til hans í uppbótartíma fyrri hálfleiks og í stað þess að sparka á markið reyndi Kane að taka boltann með sér en vanarmenn Þýskalands komu til bjargar. Markalaust í hálfleik. Kai Havertz byrjaði síðari hálfleikinn á þrumuskoti sem Jordan Pickford blakaði yfir markið og það var meiri áræðni og kraftur yfir þeim þýsku í síðari hálfleik. Fyrsta mark leiksins kom stundarfjórðungi fyrir leikslok. Eftir ansi góða enska sókn átti Luke Shaw frábæra fyrirgjöf fyrir markið þar sem Raheem Sterling kom askvaðandi og lagði boltann í netið. Þriðja mark Sterling á EM. 3 - Raheem Sterling is only the second player to score each of England's first three goals of an edition of a major tournament (World Cup/EUROs), after @GaryLineker did so at the 1986 World Cup. Magic. pic.twitter.com/SDfOiN3GSR— OptaJoe (@OptaJoe) June 29, 2021 Þeir þýsku þurftu þar af leiðandi að færa sig framar og þeir fengu rosalegt færi á 81. mínútu. Markaskorarinn Sterling missti boltann á miðjum vellinum sem endaði með því að Thomas Muller slapp einn gegn Jordan Pickford en skot hans framhjá. Dauðafæri! Eftir það pössuðu þeir ensku sig betur og hleyptu Þjóðverjum ekki í hættuleg færi. Þeir gerðu svo út um leikinn á 86. mínútu en eftir hraða sókn gaf Jack Grealish góða fyrirgjöf fyrir markið og Harry Kane skilaði boltanum í netið. Fyrsta EM markið hans. Lokatölur 2-0. Þeir ensku eru komnir í átta liða úrslitin þar sem þeir mæta Svíþjóð eða Úkraínu á sunnudaginn í Róm. 🏴 - England win a knockout match against (West) Germany 🇩🇪 at a World Cup/EUROs for the first time since the 1966 World Cup final, when England won 4-2 after extra time at Wembley. #ENGGER #EURO2020— Gracenote Live (@GracenoteLive) June 29, 2021 EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 er einnig hægt að kaupa stakt á lækkuðu verði frá og með 24. júní á kr. 3.990.
EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 er einnig hægt að kaupa stakt á lækkuðu verði frá og með 24. júní á kr. 3.990.