Fótbolti

Æðis­menn spá í EM-leiki dagsins

Anton Ingi Leifsson skrifar
Strákarnir í Æði spáðu í spilin.
Strákarnir í Æði spáðu í spilin. mynd/skjáskot

Strákarnir úr raunveruleikaþáttunum Æði spáðu í spilin fyrir fyrstu tvo leikina í sextán liða úrslitum Evrópumótsins í dag.

Þeir munu spá fyrir um alla leikina en fyrstu tveir leikirnir í sextán liða úrslitunum fara fram í dag.

Þar mætast annars vegar Wales og Danmörk í Amsterdam en í hinum leiknum mætast Ítalía og Austurríki.

Flautað verður til leiks í Amsterdam klukkan 16.00 en síðari leikurinn hefst klukkan 19.00.

Spá Patta, Binna Glee og Bassa Maraj fyrir leiki dagsins má sjá hér að neðan.

Klippa: Æði spáir í spilin: Wales - Danmörk
Klippa: Æði spáir í spilin: Ítalía - Austurríki




Fleiri fréttir

Sjá meira


×