Nálægðin við jökulinn er sterk upplifun Fjallsárlón 6. júlí 2021 11:00 Siglingar um Fjallsárlón eru einstök upplifun. Fjallsárlón á Breiðamerkursandi er ein af perlum Íslands.
Sigling um Fjallsárlón á Breiðamerkursandi er einstök upplifun, jökullónið liggur við Fjallsjökul sem skríður austur úr Öræfajökli. Siglt er á meðal ísjaka og upp að ísstálinu og segir Steinþór Arnarson, eigandi ferðaþjónustunnar siglingarnar alltaf slá í gegn. Siglingarnar um Fjallsárlón slá alltaf í gegn. „Það kemur fólki á óvart hversu mikil upplifun þetta er. Jökullinn er mjög brattur út í lónið og svo stór að lónið sjálft virkar lítið. Íslendingarnir tala sérstaklega um að upplifunin sé önnur en þeir bjuggust við,“ segir Steinþór en Íslendingar hafa verið að uppgötvað ýmsar nýjar náttúruperlur um allt land síðasta árið. „Erlendir ferðamenn hafa hingað til verið í meirihluta okkar gesta en síðasta sumar fjölgaði íslenskum gestum til muna. Það hefur komið mörgum ánægjulega á óvart hve mikil uppbygging hefur átt sér stað víða í ferðaþjónustunni frá því þeir voru á ferðinni síðast, meðal annars hjá okkur“ segir Steinþór en við Fjallsárlón er risin glæsileg aðstaða. Byggingarnar falla vel að umhverfinu og sækja fyrirmynd í byggingarstíl Öræfasveitar. „Við byrjuðum starfsemina 2013 með siglingar eingöngu, þá vorum við bara með kerru þar sem fólk gat undirbúið sig fyrir siglingu. Siðar bættist við tjald með smá veitingum og árið 2017 opnuðum við svo veitingastað ásamt góðri búnings- og salernisaðstöðu. Við fáum mikið hrós fyrir byggingarnar en þær falla vel inn í umhverfið og litirnir stinga ekki í stúf en húsin eru klædd að utan með lerki. Það er ákveðinn stíll yfir húsunum og tilvísun í byggingarstílinn hér í Öræfum, reisulegur sveitabær þar sem bætt er við einu útihúsi og svo öðru þar til myndast hefur lítið þorp,“ segir Steinþór, sem sjálfur er heimamaður í Öræfasveitinni. „Við þekkjum svæðið vel og höfum lagt mikinn metnað í að vanda til verka við alla uppbyggingu. Fjallsárlón er við Fjallsjökul, skriðjökul austur úr Öræfajökli. Við notum til að mynda eingöngu litla báta sem taka hámark tíu manns. Þannig nær leiðsögumaðurinn góðu sambandi við hópinn og fólk getur spurt spurninga. Þetta er ekki hraðsigling, það er hægt að stoppa og fá kynningu á því sem fyrir augu ber, þetta er lifandi afþreying sem hentar fólki á öllum aldri en við setjum 6 ára aldurstakmark“ segir Steinþór. Gestir fá allan nauðsynlegan búnað á staðnum. Heildartími með undirbúningi og siglingu tekur um 75-95 mínútur þar af er siglingin sjálf 45 mínútur. Ferðirnar eru þægilegar og mörg tækifæri gefast til þess að stoppa, taka myndir og spyrja út í það sem fyrir augu ber. Ýmsar ferðir eru í boði „Við bjóðum upp á almenna siglingu sem er okkar vinsælasta vara, einkasiglingu og svo lúxusferð. Einkasiglingin er vinsæl núna þar sem margir kjósa að vera innan um færra fólk eftir covid, já eða bara að sigla með sínu fólki á einka bát. Lúxusferðin hefur einnig vakið mikla lukku en í þeirri ferð er siglt út í litla eyju sem er staðsett er í lóninu mjög nálægt jökulveggnum. Í lúxusferðunum njóta gestir veitinga rétt við ísvegginn. Við sláum upp tjaldi þar er dekrað við gesti með mat og drykk. Út í eyju fer enginn nema að sigla með okkur, við blöndum ekki saman hópum þannig eyjan er þín á meðan heimsókn stendur. Lúxusferðin er mjög vinsæl hjá hvatahópum og þeim sem vilja fagna sérstöku tilefni og tekur hún um 2,5 klukkustund. Í öllum ferðunum er reyndur leiðsögumaður sem fræðir hópinn um það sem fyrir augu ber.“ Flestum kemur á óvart hve stór jökullinn er og tilkomumikill en siglt er alveg upp að ísstálinu. Nánari upplýsingar er að finna á fjallsarlon.is
Ferðalög Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Viðskipti innlent Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Viðskipti innlent Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Viðskipti innlent Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Viðskipti innlent Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Viðskipti innlent Reitir hrista upp í skipuritinu Viðskipti innlent Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Ýmsar ástæður fyrir lokun en launin stóra vandamálið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einn glæsilegasti golfvöllur landsins í Kiðjabergi Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Áhersla á öryggi viðskiptavina Eftirvagnar breyta aksturseigileikum bílsins Tæknin tekur yfir leigubílamarkaðinn Hægt að tilkynna holur á vegum á vegbót.is – FÍB er alltaf á vaktinni Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG Skelltu þér í sólina í sumar Nýjungar á Hótel Grímsborgum Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Brimborg lækkar verð á Polestar Iðnaðarmaður ársins 2024 er fundinn Ofursmart heilsárshús Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Toyota fagnar sumrinu á laugardag Þú þarft ekki að óttast rigninguna Eitt glæsilegasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins Sjá meira