Biden ánægður með fundinn en hóflega bjartsýnn Vésteinn Örn Pétursson skrifar 16. júní 2021 21:11 Fundur forsetanna tók styttri tíma en búist var við. Denis Balibouse - Pool/Keystone via Getty Joe Biden Bandaríkjaforseti kveðst ánægður með fund sinn við rússneska kollega sinn, Vladímír Pútín. Forsetarnir funduðu í Genf í Sviss í dag.
Bandarískir fjölmiðlar hafa eftir Biden að hann hafi á fundinum „gert það sem hann kom til að gera.“ Pútín og Biden ræddu saman í fjóra tíma, en það er styttra en gert var ráð fyrir. Biden sagði fundinn ekki hafa þurft að vera lengri. Bandaríkjaforsetinn sagðist þá hafa gert Pútín það ljóst að hann myndi bregðast við mögulegum tilraunum Rússa til þess að standa í vafasömu athæfi gagnvart Bandaríkjunum, til að mynda reyna að hafa áhrif á bandarískar kosningar eða stunda netárásir á Bandaríkin. Biden sagði þá að Pútín gerði sér grein fyrir því að afleiðingar fylgdu slíkum gjörðum og að trúverðugleiki Rússlands „skryppi saman“ þegar það stæði í netárásum á aðrar þjóðir. Þá gaf hann það í skyn að Bandaríkin myndu grípa til aðgerða ef Alexei Navalní, þekktasti stjórnarandstæðingur Rússlands, myndi deyja í fangelsi. Þó að Biden virtist ánægður með fundinn svaraði hann spurningum um hvort hann héldi að Pútín myndi breyta hegðun sinni gagnvart Bandaríkjunum á varfærinn hátt. „Ég er ekki viss um neitt.“
Bandaríkin Rússland Sviss Joe Biden Mest lesið Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Fleiri fréttir Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað Sjá meira