Tíska og hönnun

Skapa dýpri skilning í samtali milli listar og hönnunar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Edda Mac annar sýningarstjóra sýningarinnar.
Edda Mac annar sýningarstjóra sýningarinnar. Vísir/Vilhelm

TEXTÍL-RIT er samsýning meðlima Textílfélagsins á HönnunarMars, þar sem þátttakendur velta fyrir sér gerð og hlutverki bóka út frá textíl.

Síðasti sýningardagurinn þeirra á Kolagötu 2 í Reykjavík er í dag, en einnig er hægt að skoða sýninguna rafrænt.  Sýningarstjórar eru Bethina Elverdam Nielsen og Edda Mac og sýningin er styrkt af Reykjavíkurborg.

Vísir/Vilhelm

Þátttakendur; Aðalheiður Alfreðsdóttir, Andrea Fanney Jónsdóttir, Anna Gunnarsdóttir, Annamaria Lind Geirsdóttir, Ásdís Birgisdóttir, Bethina Elverdam Nielsen, Edda Mac, Herdís Tómasdóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Hrönn Vilhelmsdóttir, Judith Amalía Jóhannsdóttir, Karin María Sveinbjörnsdóttir, Kristveig Halldórsdóttir, Margrét Friðjónsdóttir, Margrét Guðnadóttir, Päivi Vaarula, Ragnheiður Björk Þórsdóttir, Rakel Blom, Sólrún Friðriksdóttir, Þorgerður Hlöðversdóttir.

Kristveig Halldórsdóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir og Judith Amalía Jóhannsdóttir eru á meðal þeirra sem taka þátt í sýningunni.Vísir/Vilhelm

Með verkum sínum leitast þátttakendur við að leiða áhorfandann í gegnum sögur með því í að kryfja efni niður í smáatriði og afhjúpa dulin augnablik. Hversu langt er hægt að teygja textílform?

Hvernig hefur efnisval áhrif á upplifun okkar? Getur yfirborð flata haft áhrif á tilfinningar okkar og líðan? Þátttakendur skapa dýpri skilning í samtali milli listar og hönnunar. Þær hafa frjálsar hendur hvað varðar tækni og stærð verka. Efni verður þó að vera textíll eða vísa í textíl. Sýningin verður bæði sett upp í rými í miðbænum og á netinu til að hún verði aðgengileg sem flestum.

Nánari upplýsingar má finna HÉR! 


Tengdar fréttir

Hönnunarveisla á POPUP á Hafnartorgi

Í Pop Up rými á Kolagötunni á Hafnartorgi er hægt að sjá nokkrar sýningar í dag og áhugasamir geta líka skellt sér í myndakassa eða tekið eins og einn leik í pílu. 

Smiðja í skapandi fataviðgerðum á Garðatorgi í dag

Ýr Jóhannsdóttir er textílhönnuður og listakona sem starfar undir nafninu Ýrúrarí. Verk hennar eru að mestu unnin í prjóni og í þeim mætast húmor, handverk og hreyfing. Ýr hefur miðlað aðferðarfræði sinni í smiðjum þar sem unnið er með ósöluhæfar peysur úr fatasöfnun Rauðakrossins og þær fá nýtt líf






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.