Tíska og hönnun

Útilyktin vinsæl hjá hátíðargestum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Frá upplifunarsýningunni ÚTILYKT á HönnunarMars.
Frá upplifunarsýningunni ÚTILYKT á HönnunarMars. Hjördís Jónsdóttir

Gras, íslenskt grjót og útilykt tóku yfir verslun 66°Norður á HönnunarMars þar sem samstarf þeirra við Fischersund var kynnt.

Útilykt ilmurinn vakti mikla athygli tískuáhugafólks á hátíðinni og vildu margir prófa að finna lyktina af þessum nýja ilm.

Um er að ræða þverfaglegt hönnunarverkefni þar sem markmiðið var að búa til ilm fyrir 66°Norður og ákveðinn upplifunarheim í kringum ilminn, en hluti af verkefninu er einnig tónverk sem unnið er af Jónsa í Sigurrós, Sindra og Kjartani Holm. Verkið var spilað á sýningunni.

Hjördís Jónsdóttir

Jónsi í Sigurrós er einn af þeim sem stendur að fyrirtækinu Fischersund sem sérhæfir sig í upplifun og skynjun en hann og systur hans, Lilja, Ingibjörg og Sigurrós, stofnuðu Fischersund saman árið 2017.

Ilmvatnið er handgert hér á Ísland og unnið úr íslenskum lækningajurtum og jurtaolíum sem gerir þetta að hreinni ilmvöru sem er laus við öll óæskileg aukaefni. Eins og fyrr segir er innblástur sóttur í íslenska náttúru og íslenska útilykt en vindurinn, sjórinn, snjórinn, nýslegið gras og að vera úti lék stærstan þátt í innblæstrinum. Systkinin sömdu þennan texta í tengslum við verkefnið. 

Hjördís Jónsdóttir

Vindur í fangið úr öllum áttum

Skafrenningur smýgur innundir úlpukraga

Snjóperlur á frosnum lopavettlingum

Berjablá tunga og höfuð hvílir í mjúku lyngi

Sláttuvél í fjarlægum garði

Óskreytt jólatré fýkur niður gangstétt í sjávarrokinu

Hélaðar rúður, veðurfréttir og miðstöðin í botni

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir sem Hjördís Jónsdóttir tók af gestum sýningarinnar á HönnunarMars.

Hjördís Jónsdóttir
Hjördís Jónsdóttir
Hjördís Jónsdóttir
Hjördís Jónsdóttir
Hjördís Jónsdóttir
Hjördís Jónsdóttir
Hjördís Jónsdóttir
Hjördís Jónsdóttir
Hjördís Jónsdóttir
Hjördís Jónsdóttir
Hjördís Jónsdóttir
Hjördís Jónsdóttir
Hjördís Jónsdóttir
Hjördís Jónsdóttir

Tengdar fréttir

Halda uppboð á frumgerðum hönnuðanna í Ásmundarsal

Á morgun fer fram sérstakt uppboð í Ásmundarsal á milli 15:00 og 17:00. Á uppboðinu verða hlutir sýningarinnar Hlutverks til sölu og verður Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkítektúrs í hlutverki uppboðsstjóra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.