Innlent

Svandís og Katrín kynntu breytingar innanlands og á landamærum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Svandís Svavarsdóttir kynnti afléttingu takmarkana eftir ríkisstjórnarfund í dag. Katrín Jakobsdóttir ræddi aðgerðir á landamærum.
Svandís Svavarsdóttir kynnti afléttingu takmarkana eftir ríkisstjórnarfund í dag. Katrín Jakobsdóttir ræddi aðgerðir á landamærum. Vísir/Vilhelm

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra minnisblaði með tillögum sínum um aðgerðir innanlands.

Núverandi reglugerð gildir til 26. maí, sem er miðvikudagur í næstu viku. Svandís sagði við fréttastofu í vikunni að létt yrði á aðgerðum fyrr, og nefndi þar eftir helgina. Hins vegar er annar í hvítasunnu á mánudag og því gæti afléttingin átt sér stað á þriðjudag.

Þá sagði Svandís reikna með að samkomubann yrði að minnsta kosti útvíkkað til hundrað manna. Sem stendur er 50 manna samkomubann í landinu og tveggja metra regla auk fleiri takmarkana.

Þórólfur Guðnason í Laugardalshöll á dögunum þegar hann var bólusettur með bóluefni AstraZeneca.Vísir/Vilhelm

Ríkisstjórnin er sem stendur á reglulegum föstudagsfundi í Ráðherrabústaðnum þar sem minnisblað Þórólfs verður vafalítið rætt. Nokkur smit hafa greinst á landinu undanfarna daga og sum hver utan sóttkvíar.

„Við höfum verið með þessar afléttingar undanfarið þrátt fyrir smit í samfélaginu. Ég held við ættum að halda því áfram,“ sagði Þórólfur á upplýsingafundi almannavarna í gær.

Þá sagðist Þórólfur á upplýsingafundinum í gær hafa þegar skilað ráðherra tillögum að aðgerðum á landamærum.

Reiknað er með að fundi ríkisstjórnar ljúki um ellefuleytið. 

Vísir verður í beinni útsendingu frá Tjarnargötu og ræðir við Svandísi að loknum fundi.

Uppfært: 150 mega koma saman á þriðjudaginn, fólk þarf ekki að bera grímur í verslunum og veitingastaðir taka á móti gestum til klukkan 23 (opið til 24). Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar mega taka við leyfilegum hámarksgjölda. 

Þá ræddi Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra aðgerðir á landamærum. Bólusettir verða áfram skimaðir á landamærum til 15. júní. Krafa um sóttvarnahótel falli niður 1. júní og sömuleiðis bann við ónauðsynlegum ferðum.


Tengdar fréttir

Telur víst að minnst eitt­hundrað megi koma saman eftir helgi

Heilbrigðisráðherra telur nokkuð öruggt að 100 manns hið minnsta verði leyft að koma saman þegar nýjar samkomutakmarkanir taka gildi eftir helgi. Grímuskyldan er einnig til skoðunar en ráðherra telur að hún verði afnumin í áföngum.

Telur lík­legt að hægt verði að af­létta grímu­skyldu fljót­lega

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir líklegt að hægt verði að aflétta grímuskyldu fljótlega. Sóttvarnatakmörkunum verður aflétt í skrefum á næstu vikum og líklegt er að þær verði nær alveg farnar í lok júlí þegar meirihluti landsmanna verður bólusettur.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×