Skoðun

Látum draumana rætast - nema drauma fatlaðs fólks

Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar

Á síðasta borgarstjórnarfundi var menntastefna Reykjavíkurborgar rædd. Heitið á stefnunni er að mínu mati fallegt; “Látum draumana rætast”. Það er talið að stefnumótunin sjálf sé sú allra metnaðarfyllsta sem sést hefur hér í borg en um 10.000 manns komu að því að móta hana.

Í Reykjavík eru um 22.000 börn í skólakerfinu. Á hverjum virkum degi koma 22.000 börn í leikskólann eða grunnskólann sinn. Einhver kríli fara til dagforeldris og nokkrir árgangar sækja frístundarheimilið sitt heim að skóladegi loknum. Í félagsmiðstöðvar eru skráðar 126.000 heimsóknir á ári svo eitthvað sé nefnt.

Eins og fyrr segir eru í Reykjavík 22.000 börn á leik- og grunnskólaaldri. Þetta gera 22 þúsund drauma.

Allskonar drauma því enginn draumur er eins, því ekkert barn er eins.

Reykjavíkurborg er að gera virkilega góða hluti til að láta 22 þúsund fjölbreytta og einstaklingsbunda drauma rætast. Ég er stolt af því að taka þátt í að fylgja eftir þessari stefnu og leiða hana inn í skóla- og frístundarstarf hér í borg sem fulltrúi í Skóla- og frístundarráði.

Í menntamálaráðuneytinu stendur nú yfir mótun nýrrar menntastefnu ríkisins. Fyrir þá sem ekki vita ber ríkið ábyrgð á framhaldsskólum og háskólum á Íslandi.

Í ræðu minni á síðasta borgarstjórnarfundi notaði ég tækifærið í pontu og sendi út ákall yfir á Alþingi. Mig langar að benda þeim sem stýra og móta þessa stefnu á að hluti af þessum fyrrnefndu 22 þúsund börnum munu ekki eiga tækifæri á að láta alla sína drauma rætast þegar komið er upp á háskólastigið.

Dóttir mín er ein af þessum 22 þúsund börnum sem eru í leik- og grunnskólakerfinu sem stendur. Stelpan mín mun, eins og staðan er núna, hafa úr einungis tveimur námsleiðum að velja þegar hún útskrifast úr framhaldsskóla og fer yfir á háskólastigið. Ástæðan fyrir þessu takmörkuðu valkostum er sú að það er aðeins gert fyrir tveimur framtíðardraumum fyrir fötluð börn.

Það sem stendur til boða er annars vegar tveggja ára diplómanám fyrir fámennan hóp í Háskóla Íslands og hinsvegar eins árs nám í Myndlistarskólanum. Í drögum um nýja menntastefnu ríkisins er ekki minnst einu orði á að stefnt sé á fjölbreyttari menntun í boði fyrir þennan stóra og frambærilega hóp.

Það er að mínu mati óásættanlegt og kalla hér formlega eftir því að ný menntastefna ríkisins geri ráð fyrir öllum gerðum af draumum, fyrir alla. Ekki bara ófatlaða.

Höfundur er fulltrúi Viðreisnar í skóla- og frístundaráði í Reykjavík og móðir barns með framtíðardrauma




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×