Hasar á bílavörumarkaðnum: Lénadeilur Poulsen og Orku ehf ná áratug aftur í tímann Atli Ísleifsson skrifar 24. maí 2021 07:01 Deilt hefur verið um lénin orka.is og polsen.is. Deilurnar hafa ítrekað komið til kasta Neytendastofu. vísir Deilur Poulsen á Íslandi og Orku ehf um lén á Internetinu eru á engan hátt nýjar af nálinni og hafa þær ítrekað komið til kasta Neytendastofu.
Greint var frá því á mánudag að Neytendastofa hafi meinað Orku ehf að notast við lénið polsen.is þar sem það gæti valdið ruglingi neytenda þar sem samkeppnisaðilinn Poulsen notaðist við lénið poulsen.is. Sjón- og hljóðlíking væri alger enda sé það aðeins stafurinn „u“ sem skilji á milli lénanna. Poulsen flytur meðal annars inn varahluti í bíla og iðnvélar, en Orka ehf sinnir meðal annars framrúðuskiptum í bílum og sölu á ýmsum bílavörum. Eftir að fréttastofa sagði frá ákvörðun Neytendastofu á mánudag bárust fréttastofu fjölda ábendinga um að málið væri flóknara en svo. Ef farið væri inn á heimasíðuna orka.is væri netverjum beint inn á heimasíðu Poulsen, poulsen.is. Deilurnar teygðu sér lengra aftur. Jóhann G. Hermannson, framkvæmdastjóri Orku ehf, á lagernum á Stórhöfða.Aðsend Orka ehf fagnar niðurstöðu Neytendastofu Jóhann G. Hermannson, framkvæmdastjóri Orku ehf, segir fyrirtækið fagna niðurstöðu Neytendastofu og að fyrirtækið hafi vissulega skráð polsen.is til að „hrista aðeins upp í þessu“ þó að það væri vissulega að flytja inn framleiðsluvörur Polsen til sölu hjá sér. „Í raun má segja að nú sé tilhlökkun hjá okkur fyrir næsta skrefi Neytendastofu, sem hlýtur að vera að stöðva notkun Poulsen á léninu orka.is.“ Tengt félagi sem sameinaðist Poulsen Árið 2011 kvartaði Orka ehf. árangurslaust til Neytendastofu vegna notkunar Poulsen á léninu orka.is. Í bréfi Orku ehf til Neytendastofu sagði að félagið hafi einkarétt á firmanafninu ORKA og því hafi mikið verið í mun að ekki væri gengið á rétt þeirra. Poulsen og Orka ættu í samkeppni og því hafi skapast ruglingshætta fyrir neytendur við það að Poulsen hafi notað firmaheiti Orku sem lén. Í ákvörðun Neytendastofu frá árinu 2012 segir að ekki hafi fengist séð að bein tengsl hafi verið hjá Poulsen við lénið orka.is, önnur en þau að fyrri rétthafi lénsins hafi sameinast félaginu. „Eini tilgangur vefsíðunnar sem hýst er á léninu orka.is er að upplýsa um að Orka-Snorri G. Guðmundsson (OSG) hafi sameinast Poulsen árið 2005 og að flytja þann sem slær inn lénið yfir á vefsíðuna poulsen.is,“ sagði í ákvörðuninni. Poulsen heimilt að nota orka.is Þó sagði í ákvörðuninni: „Við mat á ruglingshættu milli auðkennanna telur Neytendastofa að líta verði til þess að engin starfsemi er á vefsíðu með léninu orka.is. Þá hefur ekki síður áhrif á mat á ruglingshættu að Poulsen hefur verið skráður rétthafi lénsins frá árinu 2007, eða í fjögur ár áður en erindi barst Neytendastofu, án þess að Orka hafi kvartað yfir notkuninni. Að öllu framangreindu athuguðu telur Neytendastofa ekki sýnt fram á ruglingshættu milli aðilanna vegna lénsins,“ sagði í ákvörðuninni. Árið 2017 kom einnig mál milli deiluaðilanna til kasta Neytendastofu þar sem Orku ehf var meinað að notast við lénið cromax.is eftir kvörtun frá Poulsen. Ekkert gengur að fá Poulsen til að hætta notkun á léninu Jóhann segir í samtali við Vísi að með nýjustu ákvörðun Neytendastofu verði þess þá vart langt að bíða þar til Poulsen verði bannað að nota lénið orka.is. Í yfirlýsingu frá Orku ehf sem send var fréttastofu segir að bent sé á að uppruna málsins alls megi einmitt rekja til notkunar Poulsen á léninu www.orka.is. „Poulsen nýtir sér lénið www.orka.is til þess að áframsenda viðskiptavini beint yfir á heimasíðu félagsins www.poulsen.is. Staðreyndin er sú að viðskiptavinir Orku ehf. hafa ítrekað lent í því að hafa pantað sér tíma í bílrúðuskipti á www.orka.is og mætt svo til Orku ehf. án þess að eiga þar bókaðan tíma. Orka ehf. hefur ítrekað reynt að fá Poulsen til þess að láta af umræddri háttsemi en án árangurs. Með því að banna Orku ehf. að nýta www.polsen.is til þess að áframsenda viðskiptavini á heimasíðu Orku ehf. hefur Neytendastofa komist að þeirri niðurstöðu að bein áframsending sem þessi sé ólögmæt þar sem að hún sé til þess fallin að valda ruglingi hjá neytendum. Að mati Orku ehf. er því augljóst að Neytendastofa þarf nú að stöðva ólögmæta nýtingu Poulsen á léninu www.orka.is þar sem að hún er til þess fallin að valda ruglingi hjá neytendum. Orka ehf. hefur kvartað undan notkun Poulsen á léninu og væntir þess að Neytendastofa taki ákvörðun í málinu fljótlega,“ segir í yfirlýsingunni. Enginn misskilningur Poulsen-megin Ragnar Matthíasson, framkvæmdastjóri Poulsen, segir að ekki standi til hjá þeim að hætta notkun á léninu orka.is. Orka ehf hafi ítrekað kvartað en allar ákvarðanir opinberra aðila hafi fallið Poulsen í hag. Ragnar Matthíasson fyrir utan verslun Poulsen.Vísir/vilhelm „Við keyptum á sínum tíma fyrirtæki sem heitir Orka og öllu tilheyrandi, lénið þar með talið. Misskilningurinn er að minnsta kosti enginn okkar megin.“ Hann segist ennfremur vissulega orðið var við rugling viðskiptavina þegar kemur að lénum fyrirtækjanna. „Aðallega þó þegar kemur að polsen.is. Við urðum vör við það og leituðum þá Neytendastofu sem hefur nú birt ákvörðun sína, okkur í hag,“ segir Ragnar.
Auglýsinga- og markaðsmál Bílar Neytendur Mest lesið Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Viðskipti innlent Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Viðskipti innlent Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Viðskipti innlent Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Viðskipti innlent Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Viðskipti innlent Reitir hrista upp í skipuritinu Viðskipti innlent Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Ýmsar ástæður fyrir lokun en launin stóra vandamálið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Ómar fær fyrir ferðina Verðskrá Lufthansa hækkar vegna nýs umhverfisgjalds Sex fyrirtæki sektuð vegna nikotínauglýsinga Senda tækið til útlanda til skoðunar og vilja endurgreiða Steinunni Þrjú þúsund krónur fyrir ferð í parísarhjólið Selja eintómt brauð á 3.190 krónur Meðalheildarlaun 935 þúsund og hæst hjá ríkinu Tæpar 2500 krónur fyrir litla samloku á Geysi Festi fær að kaupa Lyfju Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum „Rétturinn til viðgerðar“ væntanlegur til landsins Borgar 760 þúsund fyrir flísalögn sem átti að kosta þrjár milljónir Pepsíunnandi til margra ára kveður drykkinn eftir breytinguna „Það sem þú greiðir niður, það kemur aldrei aftur“ Vísar ásökunum um „vopnaðan frið“ um verðlag á bug Aldrei verið minna af sykri í íslensku Pepsí Landsnet skuldar Landsvirkjun 2,4 milljarða Keypti gallaðan kveikjara og fær 50 þúsund krónur Landsvirkjun vann og neytendur borga brúsann Reykjavík Marketing sektað vegna fullyrðinga um vörur frá Lifewave Lét bóna bílinn, lenti illa í því og fær 1,6 milljónir í bætur Vara við hættulegum og hræódýrum vörum hjá netverslunum Sjá meira