Innlent

Tekið á móti Blinken með Palestínufánum

Snorri Másson skrifar
Niður með hernámið, segir á einu skiltanna. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna verður í Hörpu í dag.
Niður með hernámið, segir á einu skiltanna. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna verður í Hörpu í dag. Vísir/Vilhelm

Hópur fólks er saman kominn fyrir utan Hörpu í miðbæ Reykjavíkur með Palestínuskilti á lofti. Markmiðið er að minna utanríkisráðherra Bandaríkjanna á málstað frjálsrar Palestínu í skugga árása Ísraelshers á landið.

Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom til landsins í gær og fundar með Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra klukkan tíu í Hörpu. Að þeim fundi loknum hefur verið boðað til blaðamannafundar í Hörpu og verður sá fundur í beinni útsendingu á Vísi.

Mótmælendum fjölgar hægt og rólega fyrir utan tónlistarhúsið, þar sem utanríkisráðherrann verður í allan dag. Ætla má að um 100 séu á staðnum.

Hatari sýnir Palestínufánann í Eurovision.

Á meðal mótmælenda er hinn heimsfrægi íslenski málsvari Palestínu, Matthías Tryggvi Haraldsson söngvari Hatara. Tvö ár eru liðin frá því að hann dró upp fána ríkisins í beinni útsendingu á Eurovision í Ísrael.

Bandaríkin og Ísrael eiga sögulega séð í nánu hernaðarlegu samstarfi og Bandaríkin leggja Ísraelsher til mikla fjármuni árlega í því skyni.

Joe Biden Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í nótt að hann styðji kröfur um vopnahlé á Gasa-svæðinu þar sem ísraelski herinn hefur nú látið sprengjum rigna yfir íbúðabyggð í átta daga og Hamas-liðar hafa sent eldflaugar yfir til Ísraels á móti.

Biden er sagður hafa rætt við Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraela og greint honum frá því að Bandaríkjamenn ásamt Egyptum og fleiri þjóðum væru nú að vinna að því að koma á slíku hléi.

Bandaríkjamenn beittu hinsvegar enn og aftur neitunarvaldi sínu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og stöðvuðu yfirlýsingu þess efnis að átökunum skyldi hætt tafarlaust.


Tengdar fréttir

Mikill viðbúnaður þó talið sé að ógnin sé engin

„Við teljum í sjálfu sér og vitum ekki um sérstaka ógn þessu samfara,“ segir Jón Bjartmars, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, spurður hvort erlendum ráðherrum, sem ætla að sitja fund Norðurskautsráðs hér á landi í vikunni, stafi ógn af einstaklingum eða hópum hér á landi.

Ræðir Palestínu og Ísrael við Blinken og Lavrov

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun hvetja utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Rússlands til þess að beita sér fyrir friðsamlegri lausn á átökum Ísraels og Palestínu á fundi þeirra í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×