Á 181 leik að baki í ensku úrvalsdeildinni og 25 A-landsleiki en spilar með Þrótti Vogum í sumar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 4. maí 2021 20:35 Marc Wilson og Hermann Hreiðarsson í baráttunni við Steven Fletcher á sínum tíma. Þeir verða saman í þjálfarateymi Þróttar Vogum í sumar. Anthony Devlin/Getty Images Marc Wilson mun spila með Þrótt Vogum í 2. deild karla í knattspyrnu í sumar ásamt því að vera í þjálfarateymi liðsins. Þróttur gaf út tilkynningu þess efnis í gærkvöld.
Áhugafólk um enska knattspyrnu kannast ef til vill vel við kauða en hinn 33 ára gamli Wilson lék lengi vel í ensku úrvalsdeildinni. Á ferli sínum í Englandi lék hann með Stoke City, Bournemouth, West Bromwich Albion, Yeovil, Luton Town, Sunderland og Bolton Wanderers. Þá lék hann 25 landsleiki fyrir Írland á árunum 2011 til 2016. Wilson hefur ekkert leikið síðan hann lék með Bolton tímabilið 2018-2019. Hann mun nú taka slaginn með Þrótti sem ætlar sér upp um deild. Hann kemur til liðsins fyrir tilstuðlan Hermanns Hreiðarssonar, þjálfara liðsins, en þeir léku báðir á sínum tíma hjá Portsmouth. Þróttur Vogum mætir Njarðvík á útivelli í fyrstu umferð 2. deildar karla á föstudaginn, 7. maí. Marc Wilson, fyrrverandi landsliðsmaður Írlands og leikmaður í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um árabil, er kominn til Voga, hann spilar í sumar og verður í þjálfarateyminu.Posted by Þróttur Vogum on Tuesday, May 4, 2021 Í gær var tilkynnt að Danny Guthrie, fyrrum leikmaður Newcastle United og Liverpool, væri að ganga í raðir Fram sem spilar í Lengjudeildinni. Stóra spurningin er því, hver kemur næst?
Fótbolti Íslenski boltinn Vogar Mest lesið Andri Rafn fimmti í þrjú hundruð leikja klúbbinn Íslenski boltinn Hvergerðingar í úrslit umspilsins Körfubolti „Erfitt að spila á móti liði sem fær þrjár villur í seinni“ Körfubolti KA Íslandsmeistari og tók alla titlana Sport Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Fyrirliðinn kom heimamönnum til bjargar Íslenski boltinn Embla og Eva Björk í ham þegar Stjarnan komst yfir Handbolti Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Enski boltinn „Adam Ægir hefði alveg mátt gefa á mig“ Fótbolti Dagskráin í dag: Nágrannaslagir í Bestu karla og Bónus kvenna Sport „Veit ekki hversu oft hann fór í stöngina eða slánna“ Sport Fleiri fréttir Andri Rafn fimmti í þrjú hundruð leikja klúbbinn Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Fyrirliðinn kom heimamönnum til bjargar „Ég fer bara sáttur á koddann“ Uppgjörið: ÍA - Vestri 0-2 | Taplausir Vestramenn sóttu sigur á Skagann „Gæti vel verið en það er bara fókus á næsta leik“ Uppgjörið: FH - KR 2-2 | Bæði lið enn án sigurs Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Jónatan Ingi sýndi sínar bestu hliðar í fyrsta sigri Vals Þórdís Hrönn með stoðsendingu fyrir sjötta félagið í efstu deild „Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Tveir úrskurðaðir í bann fyrir sextán liða úrslitin Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 2-2 | Samantha bjargaði stigi „Fótbolti er þannig að allir þurfa að taka ábyrgð“ Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-6 | Áslaug Dóra með þrennu í stórsigri Víkinga „Skoraði síðast þrennu í sjöunda flokki“ Stutt stopp í Vesturbæ: Valor aftur til Eyja Uppgjörið: Fram - FH 0-2 | Nýliðarnir enn án sigurs Leikmenn ÍBV hjálpuðu til við að færa sætin á milli valla í Eyjum Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR ÍA og Vestri mætast inni Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Sjá meira