Lífið

„Ertu ekki að djóka hvað þetta er gott?“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Guðrún Gunnars og Margrét Eir tóku þátt í baksturskeppninni Blindur bakstur á Stöð 2 um helgina.
Guðrún Gunnars og Margrét Eir tóku þátt í baksturskeppninni Blindur bakstur á Stöð 2 um helgina. Blindur bakstur

„Guð minn góður hvað þetta eru fallegar kökur,“ sagði Guðrún Gunnars um kökurnar sem hún bakaði í Blindum bakstri um helgina.

„Mér finnst eins og ég sé að eyðileggja kökuna sem ég er búin að baka,“ sagði Margrét Eir þegar hún byrjaði að fylla bollakökurnar og skreyta.

„Nei, þetta verður bara rosalega subbulegt,“ sagði Guðrún þegar hún fyllti sínar kökur.

Þær Margrét og Guðrún áttu í stökustu vandræðum með að hætta að kíkja á Evu Laufey en þættirnir ganga einmitt út á að snúa baki í hana og fylgja leiðbeiningum hennar í blindni.

„Hvað á ég að gera við ykkur?“ spurði Eva Laufey á einum tímapunkti.

Hér fyrir neðan má sjá brot úr þættinum, þar sem kökurnar eru afhjúpaðar og sigurvegarinn valinn.

Klippa: Blindur bakstur - Þegar keppendur fylgja ekki fyrirmælum

Uppskriftina úr þættinum má finna í fréttinni hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.