Lífið

Farið yfir skrítna tíma á fyrsta degi sumars

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ef Covid-19 væri persóna, þá væri hún kannski svona.
Ef Covid-19 væri persóna, þá væri hún kannski svona. Vísir/RAX

Fuglahræðan sem varð á vegi ljósmyndarans Ragnars Axelssonar á dögunum, er svolítið táknræn fyrir þá skrítnu tíma sem við erum að ganga í gegnum.

Síðasta árið hefur verið erfitt, lærdómsríkt, furðulegt og á tímum ógnvekjandi. Óvissan hefur oft verið mikil og áhyggjurnar nánast óbærilegar.

Þetta hlýtur nú bara að fara að klárast í sumar, segir ljósmyndarinn bjartsýnn þegar við förum yfir myndirnar hans. Eflaust er hann líka spenntur að komast aftur á flakk að mynda heiminn og skrásetja lífið á Norðurslóðum. En á meðan heimsfaraldurinn geisar, myndar hann lífið á Íslandi á tímum Covid-19. Hér fyrir neðan má sjá sýnishorn. 

Í háloftunum, fljúgandi eins og fugl.Vísir/RAX

Þegar sól hækkar á lofti eru Íslendingar oft eins og beljur sem hleypt er út á vorin.

Ótrúlegir hæfileikar.Vísir/RAX

Heiminum okkar hefur verið snúið á hvolf síðustu mánuði en við sjáum nú fyrir endann á þessu.

Það er alveg hægt að æfa þó að líkamsræktarstöðvar loki.Vísir/RAX

Stundum virðist samt eins og tíminn standi í stað. Dagar, vikur og mánuðir renna í eitt.

Það skiptir máli að hafa góðan stuðning.Vísir/RAX

Það eru ekki bara börnin sem hafa gaman af því að hoppa á trampólínum í görðum og á útivistarsvæðum.

Öllu snúið við.Vísir/RAX

Ungir sem aldnir geta gleymt áhyggjum sínum um stund með því að hoppa , eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Sumir fara með himinskautum í háloftaleikfimi.

Engar áhyggjur á þessum andlitum.Vísir/RAX

Þegar sú gula lætur sjá sig, léttir oft yfir Íslendingum. 

Talið niður í sumarfrí.Vísir/RAX

Hlæjandi börn fylla alla leikvelli, hestamenn í reiðtúrum sjást víða og enn fleiri hlauparar og hjólreiðamenn sjást á göngustígum bæjarfélaga.

Stundum þarf bara að setja grímurnar upp á haus í hita leiksins á, börn að leik á Seyðisfirði.Vísir/RAX

Þó að það séu vissulega takmarkanir í gangi vegna heimsfaraldursins, þá getum við verið þakklát fyrir að geta látið okkur fljóta í sundlaugum, heitum pottum og náttúrulaugum um land allt.

Þessi virðist algjörlega áhyggjulaus.Vísir/RAX

Það er eitthvað svo einstaklega íslenskt við menninguna í heitu pottunum, samtölin um pólitík, íþróttir og allt þar á milli. Þér leiðist aldrei þó þú farir einn í sund og þú getur alltaf fundið einhvern til að spjalla við um heima og geyma.

Allir að passa bilið.Vísir/RAX

Krakkar mega nú æfa íþróttir aftur og sundið er þar engin undantekning. En á meðan við getum flatmagað í laugum landsins og einbeitt okkur að persónulegu hreinlæti og fjarlægðartakmörkunum, er þríeykið að brjóta heilann um næstu skref, hópsmit og upplýsingafundi.

Kátir sundkrakkar njóta þess að vera í lauginni.Vísir/RAX

Jú Alma Möller landlæknir var frekar áhyggjufull þegar RAX gekk fram hjá henni, þar sem hún var sennilega að hugsa um okkur hin.

Alma Möller varð amma í fyrsta skipti á dögunum, tvíburastúlkur.Vísir/RAX

Helgi Björns hefur tekið að sér að skemmta fólki heima í stofu, á meðan tónleikar, sýningar og aðrir viðburðir þurfa að bíða betri tíma. Hér er hann á sínum stað, þar sem hann kann best við sig.

Hvað sérð þú marga Helga á þessar mynd?Vísir/RAX

Litlir ferfætlingar fagna því sennilega að Íslendingar hafa líklega aldrei verið jafn duglegir að viðra sig með gönguferðum um sitt nánasta hverfi.

Forvitinn lítill hundur fylgist með hvort allir séu ekki að passa tveggja metra regluna.Vísir/RAX

Það er erfitt að átta sig á því hvort þessi unga stúlka er í uppnámi yfir ástandinu, ruglandi reglum um landamæri eða hvort hún er einfaldlega í feluleik eða að hvíla lúin bein.

Ísland á tímum Covid.Vísir/RAX

Þessi skrítna veira sem hefur breytt okkar heimsmynd, að minnsta kosti tímabundið. Ástandið hefur valdið því að margir upplifa einmanaleika, einangrun og söknuð.

Einmanna lítill bangsi.Vísir/RAX

Fjöldi fólks hefur þurft að dvelja einir í veikindunum og í sóttkví, fjarri öllum sínum nánustu. Mannlegu samskiptin fara flest fram í gegnum síma og fjarfundabúnað. Enginn getur komið í heimsókn.

Vinsamlegast hringið.Vísir/RAX

Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir var þungt hugsi þegar RAX hitti á hann í Hörpu tónlistarhúsi. Óvissan er enn mikil. Hugsanlega verður að herða öll sóttvarnartilmæli innanlands áður en hægt verður að byrja að aflétta þeim í sumar.

Þórólfur sinnir ekki auðveldasta starfinu á Íslandi í augnablikinu.Vísir/RAX

Á meðan bíðum við jafn óþolinmóð eins og þessir spýtukarlar eftir að fá að hitta allt fólkið okkar, knúsa alla vinina, ferðast og allt það sem við söknum að gera.

Biðin endalausa.Vísir/RAX

Tengdar fréttir

Martraðir, óráð og eftirköst Covid-19

„Það er eins og mannkynið hafi í fyrsta skiptið í sögunni sameinast, við höfum eignast sameiginlegan óvin,“ segir Jón Ársæll Þórðarson sem veiktist illa af Covid-19.

„Ég var alveg viss um að ég myndi deyja næst“

„Mér líður alveg bærilega en þetta er búið að taka ótrúlega langan tíma,“ segir Pétur Reynisson, sem nýlega lauk endurhæfingu á Reykjalundi vegna Covid-19 eftirkasta. Pétur missti báða foreldra sína í vegna Covid-19 og voru þau fyrst til að falla frá vegna faraldursins hér á landi.

„Við förum bara þegar þú kemur næst“

Ragnar Axelsson ljósmyndari hitti fyrst Halldór Agnar Jónasson á sjúkrahúsinu á Akureyri. Halldór, betur þekktur sem Dóri, var þá með Covid-19 og barðist fyrir lífi sínu. Hann sagði við RAX að hann hafði valið að fara ekki í öndunarvél, taldi að hann myndi ekki lifa það af.

„Eins og að vera einn í heiminum“

Síðustu mánuði hefur ljósmyndarinn Ragnar Axelsson myndað lífið á Íslandi á tímum Covid-19 og skrásett áhrifin á okkar samfélag. Hér á Vísi munu birtast nokkrir myndaþættir með einstökum ljósmyndum RAX frá þessu óvenjulega og erfiða ári. Þetta er sá fyrsti í röðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.