Jón Viðar gætir fasteigna Róberts Wessman Atli Ísleifsson skrifar 6. apríl 2021 13:56 Jón Viðar Guðjónsson er byggingartæknifræðingur að mennt. Aztiq Jón Viðar Guðjónsson byggingartæknifræðingur hefur verið ráðinn verkefnastjóri fasteigna Aztiq.
Í tilkynningu segir að hans fyrsta verk verði að verkefnastýra uppbyggingu stækkunar hátækniseturs við Sæmundargötu 15-19, en Aztiq er fjárfestingarfélag í eigu Róberts Wessman og Árna Harðarsonar. Stærstu eignir þess eru í systurfélögunum Alvogen og Alvotech og fasteignafélaginu Sæmundi sem á fasteignir Alvogen og Alvotech í Vatnsmýrinni. „Jón Viðar er með BSc próf í byggingartæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík. Á starfsferli sínum hefur hann aðallega unnið á sviði verkefna- og framkvæmdastjórnunar, hönnunarstjórnunar og umsjónar og eftirlits með verklegum framkvæmdum. Jón Viðar hefur undanfarin ár starfað hjá EFLU verkfræðistofu. Framkvæmdir við stækkun hátæknisseturs Alvotech í Vatnsmýri eru þegar byrjaðar. Viðbyggingin verður um 12.500 fermetrar sem næstum tvöfaldar aðstöðu Alvotech í Vísindagörðum HÍ í Vatnsmýri. Verklok eru áætluð í lok árs 2022. Gert er ráð fyrir að starfsmannafjöldi Alvotech verði um 580 þegar hátæknisetrið verður tilbúið. Meirihluti starfsmanna verða sérfræðingar með háskólamenntun. Það er fasteignafélagið Eyjólfur ehf sem reisir húsið en félagið er í eigu Aztiq. Til að byrja með mun Alvotech leigja húsnæðið en til stendur að Alvotech eignist það þegar fram líða stundir. Auk þess að stýra uppbyggingu hátæknisetursins mun Jón Viðar bera ábyrgð á samskiptum við verktaka og borgaryfirvöld í tengslum við uppbygginguna sem og önnur verkefni er lúta að fasteignaverkefnum Aztiq,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Mest lesið Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Viðskipti erlent Falskir afslættir og þrýstingur við sölu á Temu Neytendur Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Viðskipti erlent Megi troða „singles day“ upp í greiðslugáttirnar á sér Neytendur Stærðin skiptir ekki máli Atvinnulíf Spá hressilegri vaxtalækkun Viðskipti innlent Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf Sýkna í vaxtamálinu: „Þetta eru gífurleg vonbrigði“ Neytendur Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Atvinnulíf Fleiri fréttir Hagnaður Sýnar dróst verulega saman milli ára Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Spá hressilegri vaxtalækkun Lentu vélum easyJet örugglega á Akureyri þrátt fyrir hvassviðri Kaupmáttur á opinberum markaði minni vegna lausra samninga Þrjú ráðin til Tryggja Arna innkallar kaffiskyr með vanillubragði Bein útsending: Kosningafundur Viðskiptaráðs - Horfum til hagsældar Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Ísold ráðin markaðsstjóri Frá Bændasamtökunum til Samorku Fáránlegt að eiga ekki „smá Bitcoin“ á Íslandi Deildarstjóri, lögfræðingur og viðskiptastjóri ráðin til Mílu Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Skúli og félagar sýknaðir en þrotabúið fær 750 milljónir Hafna ásökunum um smánarlaun Segja gjald á nikótínpúða leiða til aukinna reykinga „Þið hafið efni á þessari kauphækkun, borgið hana núna“ Staðfesta dóm héraðsdóms en lækka bætur til Vinnslustöðvar Þrír nýir stjórnendur hjá Wisefish Nebraska heyrir sögunni til Smána Bakkavararbræður fyrir greiðslu „fátæktarlauna“ Stækka gagnaverin á Akureyri og í Reykjanesbæ Í beinni: Kosningafundur atvinnulífsins Sætanýtingin aldrei verið betri í október ECIT AS kaupir meirihluta í Bókað frá KPMG Manneskja með von á bakvið hverja einustu umsókn Aukning í ferðalögum til landsins Breytingar í framkvæmdastjórn Origo Linda ráðin framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits Sjá meira