Lífið

„Andskotinn, þið verðið að klippa þetta út“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Það gekk á ýmsu í eldhúsinu þegar Katrín Jakobsdóttir keppti við Bjarna Benediktsson, sem er orðinn þekktur fyrir kökuskreytingarhæfileika sína.
Það gekk á ýmsu í eldhúsinu þegar Katrín Jakobsdóttir keppti við Bjarna Benediktsson, sem er orðinn þekktur fyrir kökuskreytingarhæfileika sína. Blindur bakstur

Geimveruslím, blóðslettur og sykurmassafáni voru á meðal þess sem sást á bollakökum í Blindur bakstur um helgina.

Í baksturskeppninni kepptu að þessu sinni Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Bakaðar voru bollakökur með kremi og skrauti en keppendur fengu fullt frelsi til að stjórna útlitinu á bollakökunum. 

Ráðherrarnir völdu vægast sagt mjög ólíkan stíl eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi. Katrín hikaði ekkert þegar kom að skreytingunum en Bjarni stressaðist aðeins í byrjun við að velja skreytingarþema enda margir valmöguleikar í boði. 

„Einhverra hluta vegna er ég gríðarlega stressaður. Mér finnst eins og ég sé að brenna út á tíma.“

Uppskriftin birtist fyrr í dag hér á Vísi. Í klippunni hér fyrir neðan má sjá lokahlutabaksturskeppninnar og lokaútlitið á bollakökum ráðherranna.

Klippa: Blindur bakstur - Ráðherrar keppa í bollakökubakstri

Í þáttunum Blindur bakstur fá keppendur hvorki að vita hvað þau eiga að baka né hvað uppskriftin inniheldur, þau þurfa algjörlega að fylgja leiðbeiningum Evu í blindni. Í lokin eru kökurnar svo skoðaðar og bornar saman við köku Evu Laufeyjar, sem svo fær að velja hvor þáttakandi stóð sig betur í að baka í blindni. Þættirnir eru sýndir á laugardagskvöldum á Stöð 2.


Tengdar fréttir

„Auðunn, hvað er að gerast?“

Það getur verið ákveðið listform að gera gott kökukrem og í síðasta þætti af Blindum bakstri prófuðu þeir Auðunn Blöndal og Hjálmar Örn að þeyta smjörkrem í fyrsta skipti.

„Eruð þið bara á einhverju stefnumóti hérna?“

Auðunn Blöndal og Hjálmar Örn kepptu í öðrum þætti af Blindum Bakstri sem sýndur var um helgina. „Ég er að keppa við þig, þessi var helvíti góður. Ég er ekki að fara að hjálpa þér,“ sagði Auðunn þegar Hjálmar spurði hvernig hann ætti að kveikja á vigtinni.

Ráðherrakökurnar úr Blindum bakstri

Í þættinum Blindur bakstur um helgina kepptu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Bakaðar voru bollakökur með kremi og skrauti.

Afmæliskakan í Blindum bakstri

Í baksturskeppninni Blindur bakstur um helgina hjálpaði Eva Laufey keppendum að baka afmælisköku með silkimjúku smjörkremi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.