Karó­lína með yfir­höndina gegn Gló­dísi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Glódís í baráttunni í Þýskalandi í kvöld.
Glódís í baráttunni í Þýskalandi í kvöld. Matthias Balk/Getty

Bayern Munchen er í ansi góðum málum eftir 3-0 sigur á FC Rosengård í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir byrjaði á bekknum hjá Bayern á meðan Glódís Perla Viggósdóttir var í miðri vörn sænska liðsins.

Linda Dallmann kom Bayern yfir á níundu mínútu og tuttugum mínútum síðar tvöfaldaði Klara Buehl forystuna.

Þriðja markið skoraði Lineth Beerensteyn á 69. mínútu og forysta Bæjara ansi vægleg fyrir síðari leikinn í Svíþjóð í næstu viku.

Karólína sat allan tímann á bekknum hjá Bayern en Glódís Perla lék allan leikinn fyrir Rosengård.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira