Lífið

„Auðunn, hvað er að gerast?“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Auðunn Blöndal og Hjálmar Örn kepptu í baksturskeppninni Blindur bakstur. Þar þurftu þeir að fylgja Evu Laufey Kjaran í blindni og var útkoman skemmtileg.
Auðunn Blöndal og Hjálmar Örn kepptu í baksturskeppninni Blindur bakstur. Þar þurftu þeir að fylgja Evu Laufey Kjaran í blindni og var útkoman skemmtileg. Blindur bakstur

Það getur verið ákveðið listform að gera gott kökukrem og í síðasta þætti af Blindum bakstri prófuðu þeir Auðunn Blöndal og Hjálmar Örn að þeyta smjörkrem í fyrsta skipti.

„Þetta getur ekki átt að vera svona,“ sagði Hjálmar Örn í byrjun og hafði áhyggjur af ferlinu. Eva Laufey var þó fljót að hughreysta keppendurna og segja þeim að leyndarmálið væri að þeyta, þeyta og þeyta. Frumraun þeirra var þó vægast sagt frjálsleg.

„Auðunn hvað er að gerast?“ spurði Eva Laufey þegar flórsykursmökkur umlukti hrærivélarskál hans á einum tímapunkti.  Það gekk því á ýmsu í þessum skemmtilega bakstri. 

„Það er gaman að baka,“ viðurkenndi Auðunn eftir að ná að bræða hvíta súkkulaðið og Hjálmar tók strax undir. „Þetta er mjög skemmtilegt, miklu skemmtilegra en ég hélt.“

Hægt er að horfa á smjörkremstilraun þessa tveggja keppenda í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Blindur bakstur - Auðunn og Hjálmar notuðu skrautlegar aðferðir til að gera smjörkrem

Tengdar fréttir

„Eruð þið bara á einhverju stefnumóti hérna?“

Auðunn Blöndal og Hjálmar Örn kepptu í öðrum þætti af Blindum Bakstri sem sýndur var um helgina. „Ég er að keppa við þig, þessi var helvíti góður. Ég er ekki að fara að hjálpa þér,“ sagði Auðunn þegar Hjálmar spurði hvernig hann ætti að kveikja á vigtinni.

Fengu hláturskast þegar kökurnar voru afhjúpaðar

Fyrsti þátturinn af Blindur Bakstur var sýndur um helgina á Stöð 2 en um er að ræða nýja keppni í kökubakstri. Þáttastjórnandinn Eva Laufey Kjaran fékk þær Tobbu Marínós og Júlíönnu Söru til þess að baka „red velvet“ köku og var útkoman virkilega skemmtileg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.