Skoðun

Við skulum ekki skjóta okkur í fótinn

Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar

Á meðan raddir unga fólksins óma frá Loftslagsverkfallinu og flestir virðast vera að átta sig á stærð vandans sem við stöndum frammi fyrir vegna hamfarahlýnunar er líkt og margir setji annan fótinn inn um dyragættina án þess að stíga skrefið til fulls.

Af hverju viljum við ekki að það hlýni?

Það er staðreynd að eftir því sem við losum meira kolefni þá eykst hlýnun og það er slæmt. Hlýnunin er slæm af nokkrum ástæðum - m.a. sjáum við stöðugt vaxandi öfgar í veðri og sjórinn súrnar. Það hefur áhrif á framtíð okkar og lífríkisins alls. Þegar horft er á stóru myndina er ljóst að mikilvægast er að vernda lífríkið. Bæði vegna tilveruréttar lífríkisins og einnig vegna þess að við byggjum lífsviðurværi okkar á náttúrunni og fjölbreytileika hennar.

Flestir þekkja IPCC, milliríkjaskýrslu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, en færri þekkja IPBES, milliríkjaskýrslu Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika og vistkerfi. Þróunin á þessum tveimur sviðum er samtvinnuð en samt lokar fólk oft augunum fyrir samhenginu. Sameinuðu þjóðirnar eru vanar að tileinka hvert ár einu málefni. Aftur á móti hefur allur áratugurinn 2011-2021 verið tileinkaður líffræðilegum fjölbreytileika, sem segir sitt um mikilvægi málefnisins.

Náttúrufræðistofnun Íslands heldur utan um válista fugla, spendýra og æðplantna á Íslandi og segir frá stöðu þeirra í heiminum. Þar eru fjölmörg dýr og margar plöntur á válista! Þeirra á meðal eru lundinn og landselurinn, dýr sem bæði eru mörgum landsmönnum hjartfólgin.

Við megum ekki gleyma því hvað er raunverulega í húfi þegar talað er um hnattræna hlýnun. Vistkerfin eru hringrásarkerfi lífs og náttúru og við erum partur af því hringrásarkerfi þrátt fyrir að við séum farin að upplifa okkur ansi aðskilin því. Forðumst því skyndilausnir á loftslagskrísunni sem koma niður á vistkerfum heimsins. Það leysir ekki vandamálið.

Höfundur er formaður Ungra umhverfissinna og verðandi mastersnemi í leiðtogahæfni í náttúruvernd við háskólann í Cambridge.

Greinin er hluti af Aðgerðir strax!, herferð Loftslagsverkfallsins til að vekja athygli á þörfinni á róttækari loftslagsaðgerðum af hálfu íslenskra stjórnvalda.

Við krefjumst þess að:

  • Lýst verði yfir neyðarástandi í loftslagsmálum
  • Loftslagsmarkmið verði lögfest
  • Dregið verði úr heildarlosun ásamt landnotkun um a.m.k. 50% fyrir árið 2030



Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×