Hjálmar á heimleið og í viðræðum við Val Sindri Sverrisson skrifar 11. febrúar 2021 09:48 Hjálmar Stefánsson yrði góður liðsstyrkur fyrir hvaða lið sem er í Dominos-deildinni. Hann mun hafa ákveðið að snúa ekki til baka til Hauka. vísir/bára Valur gæti verið að fá enn frekari liðsstyrk fyrir átökin í Dominos-deild karla í körfubolta að loknu tveggja vikna landsleikjahléi sem tekur við um helgina.
Landsliðsmaðurinn Hjálmar Stefánsson er á heimleið úr atvinnumennsku eftir að hafa leikið með Aquimisa Carbajosa í spænsku C-deildinni í vetur. Hjálmar er í íslenska landsliðshópnum sem spilar tvo leiki í Kósóvó nú í febrúar en flytur svo aftur heim til Íslands samkvæmt upplýsingum Vísis. Hjálmar lék allan sinn feril hér á landi með Haukum en hefur gefið sínu gamla félagi afsvar og mun því ekki snúa aftur á Ásvelli. Eftir því sem Vísir kemst næst er líklegast að Hjálmar gangi í raðir Vals en hann hefur átt í viðræðum við félagið. Hjálmar hefur leikið 16 leiki í spænsku C-deildinni í vetur og að meðaltali skorað 6,1 stig, tekið 3 fráköst og gefið 0,75 stoðsendingar. Á síðustu leiktíð skoraði þessi 25 ára gamli framherji 7,3 stig og tók 5,4 fráköst að meðaltal í leik með Haukum. Tímabilið þar áður skoraði hann 13,5 stig í leik og tók 7,5 fráköst. Samkvæmt því sem karfan.is greindi frá í gær hafa Valsmenn einnig samið við bandarískan leikmann sem mun spila með liðinu eftir landsleikjahléið. Sá heitir Jordan Roland og er 23 ára, og kemur úr bandaríska háskólaboltanum. Valsmenn mæta toppliði Keflavíkur annað kvöld í síðasta leik sínum fyrir landsleikjahléið en þeir hafa átt erfitt uppdráttar í Dominos-deildinni og eru með sex stig, tveimur stigum frá fallsæti.
Dominos-deild karla Valur Haukar Mest lesið Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Íslenski boltinn „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Handbolti „Varnarleikurinn var skelfilegur” Handbolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Fótbolti FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ Handbolti Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Körfubolti Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fótbolti Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Sjá meira