Sögulegt tap hjá Mourinho í kvöld Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 4. febrúar 2021 22:31 Mourinho á hliðarlínunni í kvöld. Clive Rose/Getty Images Lærisveinar José Mourinho í Tottenham Hotspur töpuðu sínum öðrum heimaleik í röð er liðið tapaði 0-1 fyrir Chelsea. Er þetta í fyrsta skipti sem Mourinho tapar tveimur heimaleikjum í röð á ferli sínum sem þjálfari.
Frammistaða Tottenham var ekki upp á marga fiska í kvöld og það er ljóst að Mourinho treystir ekki öllum leikmönnum sínum þar sem hann gerði aðeins tvær skiptingar í tapi kvöldsins. Jose Mourinho has lost back-to-back home league matches for the first time in his managerial career https://t.co/dHMORO1cFm— WhoScored.com (@WhoScored) February 4, 2021 Lucas Moura og Erik Lamela komu inn af bekknum en Gareth Bale sat allan leikinn á bekknum og Dele Alli var ekki í leikmannahópi Tottenham að þessu sinni. Þann 28. janúar kom Liverpool í heimsókn á Tottenham-völlinn og vann 3-1 útisigur. Í kvöld var komið að Chelsea og þar af leiðandi hefur Tottenham nú tapað tveimur heimaleikjum í röð. Er það í fyrsta sinn sem Mourinho tapar tveimur leikjum í röð á heimavelli. Mourinho hefur áður þjálfað Porto, Chelsea, Inter Milan, Real Madrid og Manchester United. Þó það hafi ekki alltaf gengið eins og í sögu þá tapaði hann aldrei tveimur deildarleikjum í röð. Fyrr en nú. 1 - In what was his 327th home league match, Spurs boss José Mourinho has suffered back-to-back league defeats on home soil for the very first time in his managerial career. Questions. pic.twitter.com/LB6fAhV1uU— OptaJoe (@OptaJoe) February 4, 2021 Tottenham hefur alls tapað þremur deildarleikjum í röð og raunar aðeins unnið tvo af síðustu tíu leikjum. Liðið hefur tapað fimm og gert þrjú jafntefli. Stóra spurningin er hvort Mourinho fái tíma til að reyna snúa gengi Tottenham við eða hvort Daniel Levy – stjórnarformaður félagsins – missi þolinmæðina.
Fótbolti Enski boltinn Tengdar fréttir Chelsea lagði Tottenham og ekki enn fengið á sig mark síðan Tuchel tók við Chelsea vann sannfærandi 1-0 sigur á erkifjendum sínum í Tottenham Hotspur er liðin mættust á heimavelli síðarnefnda liðsins í kvöld. 4. febrúar 2021 21:55 Mest lesið „Fór að hugsa hvað ég væri eiginlega að gera“ Handbolti Hefur Amorim bætt Man United? Enski boltinn „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Íslenski boltinn Sló heimsmetið í ellefta sinn sama dag og hann gaf út sitt fyrsta lag Sport „Ég er stríðsmaður og hef lent í þessu áður“ Körfubolti Dagskráin í dag: Liverpool-banarnir í Plymouth mæta til Manchester Sport Glæsimark Jóhanns tryggði sigurinn gegn Ronaldo og félögum Fótbolti Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Íslenski boltinn Messi var óánægður hjá PSG Fótbolti Hafa tapað ellefu af tólf úrslitaleikjum en eini sigurinn kom gegn Stjörnunni Handbolti Fleiri fréttir Hefur Amorim bætt Man United? Asensio skaut Villa áfram Lýsandi Sky Sports baðst afsökunar á ummælum um United UEFA segir Chelsea vera með dýrasta lið sögunnar Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Segir glottandi Carragher að fara til fjandans Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Echeverri má loks spila fyrir Man City „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Sjá meira
Chelsea lagði Tottenham og ekki enn fengið á sig mark síðan Tuchel tók við Chelsea vann sannfærandi 1-0 sigur á erkifjendum sínum í Tottenham Hotspur er liðin mættust á heimavelli síðarnefnda liðsins í kvöld. 4. febrúar 2021 21:55