Innlent

Elfa Svan­hildur nýr for­stjóri Þjónustu- og þekkingar­mið­stöðvar

Atli Ísleifsson skrifar
Elfa Svanhildur Hermannsdóttir og Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.
Elfa Svanhildur Hermannsdóttir og Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra. Stjr

Félags- og barnamálaráðherra hefur skipað Elfu Svanhildi Hermannsdóttur í embætti forstjóra Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur skipað Elfu Svanhildi Hermannsdóttur, framkvæmdastjóra Infomentor, í embætti forstjóra Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Elfa er skipuð til fimm ára og tekur til starfa 1. mars næstkomandi.

Elfa Svanhildur tekur við starfinu af Margréti Maríu Sigurðardóttur sem var skipuð lögreglustjóri á Austurlandi fyrr á árinu. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef félagsmálaráðuneytisins. Þar segir að Elfa sé með B.ed. í grunnskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands og PGDip í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands. 

„Þá lauk hún PGDip í sérkennslufræðum blindra og sjónskertra nemenda frá University of Birmingham. Elfa kláraði MPM meistaranám í verkefnastjórnun árið 2011 frá Háskóla Íslands þar sem lokaverkefnið fjallaði um sameiningu eða samvinnu stofnana fyrir fólk með skerðingar.

Elfa hefur víðtæka þekkingu og reynslu af þeim málaflokkum sem heyra undir stofnunina. Á árunum 2007-2009 var hún kennsluráðgjafi hjá Blindrafélaginu þar sem hún hafði meðal annars umsjón með utanumhaldi um öll sjónskert börn á Íslandi og tók þátt í uppbyggingu stofnunarinnar. Frá 2010 til 2016 var Elfa þjónustustjóri hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu en það starf fól meðal annars í sér skipulagningu og umsjón á þjónustu á landsvísu ásamt utanumhaldi um námskeið og fræðslu á vegum miðstöðvarinnar.

Þá var Elfa forstöðumaður Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða árin 2016-2018 þar sem hún stýrði daglegum rekstri og áætlanagerð. Hún gerðist svo framkvæmdastjóri Infomentor árið 2018 og gegnir því starfi í dag. Þar stýrir hún daglegum rekstri fyrirtækisins, ber ábyrgð á stefnumótun, áætlanagerð og þróun á hugbúnaðarlausnunum Mentor og Karellen, upplýsinga- og stjórnkerfum fyrir skólastofnanir,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×