Messi með tvennu öflugum útisigri Börsunga

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það var gleði yfir Argentínumanninum í kvöld.
Það var gleði yfir Argentínumanninum í kvöld. Juan Manuel Serrano Arce/Getty Images

Barcelona vann öflugan 3-1 útisigur á Athletic Bilbao er liðin mættust á Spáni í kvöld. Lionel Messi skoraði tvö af þremur mörkum Börsunga.

Inaki Williams kom Bilbao yfir strax á þriðju mínútu en hinn ungi Pedri jafnaði metin á fjórtándu mínútu.

Þá var röðin komin að Lionel Messi en hann kom Barcelona í 2-1 á 36. mínútu eftir stoðsendingu frá markaskoraranum Pedri.

Messi var svo aftur á ferðinni á 62. mínútu er hann skoraði þriðja mark Börsunga. Frakkinn Antoine Griezmann gaf stoðsendinguna.

Iker Muniain minnkaði muninn í 3-2 á 90. mínútu en þar við sat.

Öflugur útisigur Börsunga sem eru nú með 31 stig í þriðja sæti deildarinnar, sjö stigum á eftir toppliði Atletico Madrid, sem á tvo leiki til góða.

Bilbao er í níunda sætinu með 21 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira