Ákveðin sunnanátt víða um land Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 2. janúar 2021 07:28 Reykjavíkurtjörn í góðu vetrarveðri Vísir/Vilhelm Í dag blæs ákveðin sunnanátt með rigningu eða súld víða um land, en helst lengst af þurrt fyrir norðan og austan og hlýnar smám sman í veðri.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir einnig að á morgun bæti heldur í vind og vætu og að það megi búast við snörpum vindstrengjum á Norðurlandi. Annað kvöld snýst í suðvestanátt með slyddu vestan til og kólnandi veðri þar. Áfram suðvestanáttir í byrjun vikunnar, víða úrkomusamt og fremur svalt, en snýst líklega í norðanátt á miðvikudag með harðnandi frosti, einkum í innsveitum. Veðurhorfur á landinu Suðlæg átt, 8-15 m/s á V-verðu landinu og rigning eða súld, slydda í uppsveitum á S-landi, en hægari og víða bjartviðri eystra. Sunnan og suðvestan 8-15 og rigning víða um land í dag, en þurrt að kalla á N- og A-landi. Hlýnandi veður og hiti víða 3 til 8 stig seinni partinn. Það verður kalt í næstu viku.Vísir/VIlhelm Sunnan 13-18 og víða rigning á morgun, en hvassari vindstrengir á N-landi og þurrt að kalla þar. Suðvestlægari og slydda V-lands um kvöldið og kólnar þar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Sunnan 10-18 m/s og víða rigning eða súld, en þurrt að mestu NA-til. Hiti 2 til 9 stig, hlýjast austast. Vestlægari með slyddu V-lands um kvöldið og kólnar. Á mánudag: Suðvestan 10-18 m/s, hvassast NV-til og skúrir eða él á V-verðu landinu, en úrkomulítið eystra. Rigning eða slydda SV-til um kvöldið. Hiti kringum frostmark. Á þriðjudag: Suðvestlæg átt með rigningu eða slyddu og snjókomu til fjalla, en éljum NV-til og kólnar í veðri. Á miðvikudag: Útlit fyrir ákveðna norðvestanátt og éljum eða snjókomu á N- og A-landi, en annars bjart með köflum og talsvert frost. Á fimmtudag: Búast má við vestanátt með éljum á V-verðu landinu, en bjartviðri eystra og köldu veðri. Á föstudag: Snýst líklega í stífa norðan- og norðvestanátt með hríðarveðri N- og A-lands, en annars léttskýjað og hörkufrost um land allt.
Veður Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent Sló út við reglubundið viðhald Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Innlent Fleiri fréttir Segir langt gengið til þóknast forsjárhyggjusinnum Metóánægja með ríkisstjórnina en enn færri ánægðir með stjórnarandstöðuna Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Ráðlagt að slökkva á rafmagnstækjum Sló út við reglubundið viðhald Allar hugmyndir um verkfallsaðgerðir á ís Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Minnkandi losun en umfram úthlutanir Íslands Sigmundur góður sessunautur af því að hann mæti sjaldan Vaxtalækkun í Seðlabanka og ákall frá Blóðbanka Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Starfsfólkið slegið eftir brunann Bein útsending: Forseti Íslands og landlæknir á Forvarnardeginum Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Líkamsárás og eignaspjöll Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Fundi aftur frestað til morguns Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Ráðamenn ríkis og borgar hallast að því að halda áfram með Hvasshraun Segir gagnrýnina ósvífna og ósanngjarna Ólafur Ragnar breytti stöðu forsetaembættisins „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Mælirinn fullur vegna vanvirðingar á slysstað Vita af tíu Íslendingum í Ísrael Nýjustu vendingar í Ísrael og bróðir í sárum Harður árekstur við Ingólfsfjall Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Sjá meira