Innlent

Náðu að grípa smitaða með umfangsmiklum prófunum

Birgir Olgeirsson skrifar
Leikstjórinn Baltasar Kormákur.
Leikstjórinn Baltasar Kormákur. Vísir/Getty

Ted Sarandos, efnisstjóri bandarísku streymisveitunnar Netflix, ritaði grein sem birt var á vef bandaríska miðilsins Los Angeles Times í gær þar sem hann fer yfir hvernig framleiðsla á verkefnum Netflix hefur farið fram í ýmsum löndum.

Þar tiltekur hann sérstaklega tökur á þáttaröðinni Kötlu sem er í höndum RVK Studios. Á tökustað Kötlu er allir skimaðir fyrir veirunni og er hiti starfsliðs mældur á hverjum morgni. Einnig þarf að fara eftir ströngum reglum og læknar á svæðinu ef einhver skyldi finna fyrir einkennum.

Máltíðir í kassa

Einnig er fólk á tökustað sem fylgist með því að hópamyndun fari ekki yfir leyfilegt hámark. Þá er starfsliðinu bannað að vera saman í bíl. Hlaðborð á tökustað hafa verið bönnuð, í stað þeirra fá starfsmenn sér máltíðir afhentar í kassa.

Aðeins er einn förðunarfræðingur á tökustað sem notast við einnota áhöld. Á tveggja til þriggja tíma fresti er gert hlé á tökum svo starfsliðið geti þvegið á sér hendurnar og eru helstu snertifletir hreinsaðir.

Tökur á Netflix verkefnum fara einnig fram í Suður Kóreu. Tökur munu einnig hefjast í Svíþjóð í mánuðinum og í Noregi í júlí.

Smit hjá Kötluliðum

Leikstjórinn Baltasar Kormákur ræddi tökurnar á Kötlu við bandaríska miðilinn Deadline. Þar segir hann frá því að myndver RVK Studios sé það stærsta í Evrópu, 4.200 fermetrar að stærð, þar sem auðvelt er að fylgja reglum um fjöldatakmarkanir og halda í tveggja metra regluna.

Baltasar segir frá því að skimanir á starfsliðinu hafa leitt í ljós að nokkrir voru smitaðir en þeir í kjölfarið ekki fengið að koma á tökustað. Enginn hafi smitast á tökustað.

Bendir Baltasar á að þeir sem voru smitaðir hefðu hins vegar verið á tökustaðnum ef prófanir hefðu ekki verið jafn umfangsmiklar og raun ber vitni því þeir hefðu verið einkennalausir.

Hann segir að þeir sem hafa þurft að fara í sóttkví hafa fengið greidd laun og segir Netflix hafa stutt rausnarlega við framleiðsluna að því leytinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×