Viðskipti innlent

Drekinn seldi tugi ólöglegra níkótínvökva

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Drekinn við Njálsgötu.
Drekinn við Njálsgötu. Drekinn

Aðstandendur söluturnsins Drekans á Njálsgötu seldu alls 60 tegundir áfyllinga á rafrettur sem ýmist innhéldu ólöglegt magn af nikótíni, sögðust innihalda minna nikótín en raun var eða skorti allar viðvaranir og innihalds- og notkunarupplýsingar. Drekanum hefur því verið bannað að selja áfyllingarnar og skal farga þeim öllum innan sex vikna.

Þegar eftirlitsmenn Neytendastofu litu við í Drekanum í október í fyrra kom á daginn að í Drekanum mátti kaupa 60 tegundir af umræddum rafrettuáfyllingum sem ekki voru taldar í samræmi við lög um rafrettur. Var það ekki síst vegna þess að þær skorti hinar ýmsu merkingar; viðvörunar- og notkunarleiðbeiningar eða geymslu- og innihaldslýsingar auk þess sem þeim fylgdi ekki upplýsingabæklingur. 

Neytendastofu hafði jafnframt ekki borist tilkynning um að til stæði að selja vökvana eins og lög kveða á um. Stofnunin setti því sölubann á áfyllingarnar, kallaði eftir gögnum frá aðstandendum Drekans og gaf þeim fjórar vikur til að bregðast við.

20 millígrömm af niktótíni eða 50?

Eftirlitsmennirnir heimsóttu Drekann aftur í byrjun nóvember. „Kom í ljós á umbúðum sex áfyllinga sem innsiglaðar voru í geymslu verslunarinnar Drekans voru tveir límmiðar. Á ytri límmiða var merking um að áfyllingin innihéldi 20 mg/ml en á innri límmiða var styrkleiki nikótíns tilgreindur einra en 20 mg/ml, þ.e. 25 mg/ml og 50 mg/ml,“ segir í úrskurði Neytendastofu.

Umræddar áfyllingar voru á meðal þeirra sem voru í tímabundnu sölubanni og voru fjarlægðar með samþykki eigenda, sem sagðist ekki hafa vitað af þessum villandi merkingum. Eigandinn óskaði eftir því að þessum sex áfyllingum sem innihéldu ólöglegt magn nikótíns yrði eytt, sem Neytendastofa féllst á.

Stofnunin fór fram á að Drekinn myndi jafnframt gera úrbætur á merkingum hinna 54 áfyllinganna sem upp á vantaði og segist Neytendastofa hafa leiðbeint aðstandendum söluturnsins hvernig best væri að standa að því. Engin svör hafi hins vegar borist.

Því bannaði Neytendastofa Drekanum að selja umræddar rafretturáfyllingar og gerði honum að eyða öllum vörunum sem til voru í versluninni innan sex vikna. Í úrskurði Neytendastofu má nálgast listann yfir áfyllingarnar sem stofnunin taldi stangast á við lög.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×