Erlent

Meira en hundrað stað­fest smit um borð í banda­rísku her­skipi

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Flugmóðurskipið Theodore Roosevelt hefur legið við höfnina í Gvam frá því kórónuveirusmit greindist um borð.
Flugmóðurskipið Theodore Roosevelt hefur legið við höfnina í Gvam frá því kórónuveirusmit greindist um borð. Getty/Smith Collection

Skipstjóri kjarnorkuflugvélamóðurskips þar sem meira en 100 skipverjar eru smitaðir af kórónuveirunni biðlaði á mánudag til yfirmanna Bandaríska sjóhersins að koma upp aðstöðu þar sem allir skipverjar hans gætu farið í sóttkví í von um að koma í veg fyrir dauðsföll meðal skipverja. Hann segir ástandið um borð í skipinu fara síversnandi.

Flugmóðurskipið Theodore Roosevelt hefur legið við höfnina í Gvam frá því að kórónuveiran breiddist út um skipið, þar sem meira en fjögur þúsund manns eru um borð, fyrir tæpri viku síðan. „Þetta þarfnast pólitískrar lausnar en þetta er það eina rétta í stöðunni,“ skrifaði Brett Crozier, skipstjóri, í fjögurra blaðsíðna bréfi sem hann sendi yfirmönnum sínum.

„Við erum ekki í stríði. Sjóhermennirnir þurfa ekki að deyja. Ef við bregðumst ekki við núna er okkur að mistakast við að hugsa um okkar dýrmætustu bandamenn – sjóhermennina okkar.“

Þá sagði hann í bréfinu að aðeins lítill hluti þeirra sem smitaðir væru hefðu verið fluttir í land. Stærstur hluti áhafnarinnar sé enn um borð en þar sé ströngustu varúðarráðstöfunum fylgt, fólk sé sett í tveggja vikna sóttkví og áhafnarmeðlimir haldi sig fjarri hvor öðrum ef hægt er.

„Vegna þess hve lítið pláss er um borð getum við ekki fylgt þessu nægilega vel,“ skrifaði Crozier. „Sjúkdómurinn breiðir hratt úr sér.“

Hann biðlaði til yfirmanna sinna að útvega áhöfninni herbergjum í landi þar sem hægt væri að fara í sóttkví eins fljótt og hægt væri. „Að fjarlægja stóran hluta áhafnarmeðlima um borð í kjarnorkuflugvélamóðurskipi Bandaríkjahers og senda þá í sóttkví í tvær vikur gæti virst drastísk ákvörðun… Þetta er nauðsynleg áhætta sem verður að taka.“

„Að halda fjögur þúsund ungum mönnum og konum um borð á TR er ónauðsynleg áhætta og lætur fólkið okkar missa traust á okkur,“ skrifaði hann.

Enn sem komið er hefur enginn þeirra sjóhermanna sem smitaðir eru sýnt alvarleg einkenni sjúkdómsins en fjöldi smitaðra hækkar hratt með hverjum deginum. Fyrsta smitið um borð var staðfest 24. Mars síðastliðinn og eru þau nú orðin fleiri en hundrað. Þetta er einnig fyrsta skiptið sem kórónuveiran hefur greinst um borð í herskipi.

Enn hefur ekkert svar borist frá yfirmönnum Crozier í sjóhernum.


Tengdar fréttir

Sjúkra­skipið Com­fort komið til New York

Comfort, sjúkraskip bandaríska sjóhersins, kom til New York-borgar í gær. Um þúsund sjúkrarúm eru um borð á skipinu og er því ætlað að létta á því álagi sem hvílir á spítölum borgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×