Erlent

Rannsaka hlutabréfaviðskipti þingmanns fyrir faraldurinn

Kjartan Kjartansson skrifar
Richard Burr var einn þriggja öldungadeildarþingmanna sem greiddu atkvæði gegn frumvarpi sem bannaði þingmönnum að stunda innherjaviðskipti árið 2012. Viðskipti hans í aðdraganda faraldursins í Bandaríkjunum eru nú til skoðunar.
Richard Burr var einn þriggja öldungadeildarþingmanna sem greiddu atkvæði gegn frumvarpi sem bannaði þingmönnum að stunda innherjaviðskipti árið 2012. Viðskipti hans í aðdraganda faraldursins í Bandaríkjunum eru nú til skoðunar. Vísir/EPA

Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar nú hlutabréfaviðskipti að minnsta kosti eins þingmanns í aðdraganda kórónuveirufaraldursins þar í landi. Þingmaðurinn fékk reglulega upplýsingar og skýrslur um hættuna af veirunni og seldi í kjölfarið mikið magn hlutabréfa áður en markaðir hrundu.

Richard Burr, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins frá Norður-Karólínu, er formaður leyniþjónustunefndar öldungadeildarinnar og situr einnig í heilbrigðis- menntamála-, atvinnumála- og lífeyrisnefnd hennar. Báðar nefndir hafa fengið reglulegar upplýsingar um veiruna og faraldurinn um margra mánaða skeið.

AP-fréttastofan segir að Burr hafi selt hlutabréf hans og eiginkonu hans fyrir allt að 1,7 milljónir dollara, jafnvirði um 241 milljónar íslenskra króna, í þrjátíu skömmtum frá lokum janúar fram í um miðjan febrúar. Sum bréfin voru í hótelkeðjum sem hafa orðið illa úti í faraldrinum.

Skömmu síðar byrjuðu fjármálamarkaðir um allan heim að hrynja vegna efnahagslegra áhrifa faraldursins. Viðskipti í kauphöllinni í New York voru ítrekuð stöðvuð sjálfkrafa skömmu eftir opnun vegna þess hversu mikið hlutabréfaverð féll.

Heimildir Washington Post herma að dómsmálaráðuneytið rannsaki nú viðskiptin í samvinnu við Verðbréfa- og kaupþingsnefnd Bandaríkjanna (SEC). Lögmaður Burr segir að honum hafi verið heimilt að stunda hlutabréfaviðskipti á grundvelli opinberra upplýsinga líkt og öðrum Bandaríkjamönnum.

Lög sem voru samþykkt árið 2012 banna þó þingmönnum, starfsmönnum þeirra og öðrum embættismönnum alríkisstjórnarinnar að stunda viðskipti sem byggjast á innherjaupplýsingum sem þeir komast yfir í opinberum störfum.

Siðanefnd skoðar málið

Burr neitar sök en hefur viðurkennt að hafa selt bréfin vegna kórónuveiruheimsfaraldursins. Hann hafi hins vegar aðeins reitt sig á almennan fréttaflutning við ákvörðunina um að selja bréfin. Að sögn AP-fréttastofunnar fékk leyniþjónustunefndin sem Burr stýrir engar skýrslur um faraldurinn í vikunni sem þingmaðurinn seldi flest hlutabréfin.

Siðanefnd öldungadeildarinnar fer nú yfir hvort Burr hafi brotið siðareglur Bandaríkjaþings með viðskiptunum og heldur lögmaðurinn því fram að það hafi verið að beiðni Burr.

Fleiri þingmenn hafa verið gagnrýndir fyrir hlutabréfaviðskipti í aðdraganda faraldursins. Þeirra á meðal er Kelly Loeffler, öldungadeildarþingkona repúblikana frá Kentucky. Hún seldi hlutabréf sama dag og hún sat fund heilbrigðismálanefndar þingsins þar sem forsvarsmenn heilbrigðiskerfisins lýstu því hvaða áhrif faraldurinn gæti haft á Bandaríkin. Bréfin hrundu í verði eftir að Loeffler seldi þau. Í staðinn keypti hún meðal annars hluti í fyrirtæki sem framleiðir fjarfundarbúnað sem mikil eftirspurn ef nú eftir vegna faraldursins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×