Innlent

Veiran miklu meira smitandi en göngugarpurinn Róbert gat ímyndað sér

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Róbert Marshall, fyrrverandi fjölmiðla- og alþingismaður, göngugarpur og verðandi upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Íslands.
Róbert Marshall, fyrrverandi fjölmiðla- og alþingismaður, göngugarpur og verðandi upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Íslands. stjórnarráðið

Róbert Marshall, verðandi upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, var í hópi þeirra göngugarpa sem smitaðist við Mývatn um þarsíðustu helgi. Nær allir meðlimir hópsins hafa ýmist sýnt einkenni eða greinst með kórónuveirusmit og segir Róbert ljóst að um mikla óværu sé að ræða, enda hafi hópurinn hugað vel að smitvörnum.

Í hópnum voru 24 göngugarpar sem gengu á gönguskíðum við Mývatni helgina 13. til 15. mars og gistu á hóteli í nágrenninu.

Sjá einnig. Næstum allir líklega smitaðir eftir 24 manna útivistarævintýri á Norðurlandi

„Þarna var verið að fara eftir öllum þeim ráðleggingum sem voru í gildi, þetta er náttúrulega fyrir samkomubann. Enginn heilsaðist með handabandi, engin faðmlög, engar hópmyndatökur þar sem fólk var ofan í hvort öðru og svo framvegis,“ segir Róbert Marshall og tekur þar í sama streng og Andrea Sigurðardóttir, samferðakona hans, sem ritaði til að mynda pistil í gær þar sem hún rekur ferð hópsins. 

Hópurinn í góðum gír í Jarðböðunum. Myndatakan tók aðeins nokkrar sekúndur að sögn Andreu Sigurðardóttur sem var á meðal ferðalanganna. Annars var leitast við að halda tveggja metra bili.

Róbert er nú í sóttkví eftir ferðina, segist vera einkennalaus að frátöldu kvefi sem hann hefur burðast með undanfarnar vikur. Hann segir að á þriðjudag eftir heimkomu hafi fólk í hópnum farið að finna fyrir einkennum. Tvær drifu sig þá í sýnatöku sem báðar sýndu fram á smit.

Nú hefur komið á daginn að hið minnsta 20 af 24 göngugörpum hafa greinst með kórónuveiru. Þegar fréttastofa ræddi við Róbert um helgina sagðist hann vonast til að geta komist sjálfur í sýnatöku í dag, mánudag.

„Ég talaði við mína heilsugæslu á föstudag og var tjáð að ég væri ekki með nógu mikil einkenni til þess að það væri forsvaranlegt,“ segir Róbert.

Sjá einnig: „Allt tal um snjó­húsa­knús er tóm þvæla“

Hann segist ekki hafa getað gert sér í hugarlund hversu smitandi veiran er í raun. „Það rennur upp fyrir manni, þegar maður hefur orðið vitni að þessu, að þetta er bráðsmitandi. Eiginlega miklu meira en maður hafði ímyndað sér vegna þess að maður var að þvo sér um hendur, hvað maður snerti og hélt höndunum frá andlitinu,“ segir Róbert.

Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvernig gönguhópurinn smitaðist, en fyrrnefnd Andrea telur að uppruna smitsins megi mögulega rekja til hótelsins þar sem hópurinn gisti.


Tengdar fréttir

„Allt tal um snjó­húsa­knús er tóm þvæla“

Andrea Sigurðardóttir viðskiptafræðingur segir að alls séu tuttugu af þeim 24 sem fóru saman í skíðaferð í Mývatnssveit um þarsíðustu helgi hafi greinst með kórónuveiru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×