Innlent

Sveitarfélögin höfnuðu tilboði Eflingar

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Vísir/vilhelm

Fundi í kjaradeilu Eflingar og samninganefndar sveitarfélaga lauk í morgun, án niðurstöðu. Í tilkynningu sem Efling sendi frá sér í kjölfar fundarins segir að sveitarfélögin hafi hafnað að veita starfsfólki sínu sambærilega kjaraleiðréttingu og þá sem Efling hefur samið um við Reykjavíkurborg og ríkið.

Í samningi Eflingar við Reykjavíkurborg var samið um grunnlaunahækkanir umfram lífskjarasamninginn um að meðaltali 7.800 krónur og sérstaka leiðréttingu lægstu launa í formi aukagreiðslu. Í tilkynningu Eflingar segir að í samningi stéttarfélagsins við ríkið sé svigrúm til sérstakrar leiðréttingar á kjörum félagsmanna, sem flestir vinna á Landspítalanum.

„Á samningafundi í dag fyrir hádegi hafnaði samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga alfarið að útfæra sams konar leiðréttingu fyrir félagsmenn Eflingar sem starfa hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarsbæ og öðrum sveitarfélögum í nágrenni Reykjavíkur,“ segir í tilkynningu Eflingar.

„Á fundinum lýsti Efling vilja til að útfæra ríkis- og borgarleiðréttinguna með tilliti til launatöflu sveitarfélaganna og til að hlýða á gagntilboð. Var því hafnað.“

Þá hafi Efling komið á framfæri hvatningu til sveitarfélaganna að endurskoða afstöðu sína og kallaði eftir að fundað yrði aftur í deilunni strax eftir hádegi. Tími fyrir annan fund hefur ekki verið ákveðinn.

Verkfallsaðgerðir Eflingar hafa einkum leitt til lokunar á grunnskólum í Kópavogi, auk lokana og skertrar þjónustu á fleiri stofnunum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Óvíst er hvenær fundað verður næst í deilunni. Fimm dagar liðu milli síðustu tveggja funda.


Tengdar fréttir

„Við mættumst á miðri leið“

Formaður samninganefndar Reykjavíkurborgar segir samningurinn sem undirritaður var í nótt hafi byggt á grunni Lífskjarasamningsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×